Vil­hjálmur hjólar hag­stofu­stjóra: „Ó­trú­legt að sjá opin­beran starfs­mann sýna ráð­herra slíkan hroka“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, er allt annað en sáttur með Ólaf Hjálmars­son hag­stofu­stjóra.

Sigurður Ingi Jóhanns­son Inn­viða­ráð­herra skoraði ó­vænt á Hag­stofu Ís­lands að taka markaðs­verð hús­næðis úr vísi­tölu neyslu­verðs. Ólafur sagði í kjöl­farið að skildi ekkeert hvað ráð­herra væri að fara.

„Það er ó­trú­legt að sjá for­stjóra Hag­stofunnar sem er um leið opin­ber starfs­maður sýna ráð­herra í ríkis­stjórn Ís­lands slíkan hroka eins hér gerist. Ég botna al­ger­lega um hvað Sigurður Ingi er að tala um en ég botna hins vegar ekkert í því af hverju Hag­stofan hér á landi reiknar hús­næðis­liðin eins og gert er hér á landi,“ skrifar Vil­hjálmur.

„En nánast ekkert land reiknar hús­næðis­liðin út eins og við Ís­lendingar gerum og sem dæmi þá er til nokkuð sem heitir Sam­ræmd vísi­tala sem 33 lönd innan ESB og ESS fram­kvæma í hverjum mánuði. Þessi Sam­ræmda vísi­tala er mæld ná­kvæm­lega eins í öllum þessum löndunum og inn í þessari vísi­tölu er einnig hús­næðis­liður sem saman­stendur að svo­kallaðri „greiddri hús­leigu“ á­samt hita og raf­magni. Aðrir liðir í Sam­ræmdu vísi­tölunni er með ná­kvæm­lega sama hætti og ís­lenska vísi­talan er fram­kvæmd. Einni munurinn er hús­næðis­liðurinn,“ segir Vil­hjálmur enn fremur.

„Af hverju eru ekki aðrar þjóðir að mæla vísi­töluna eins og við? Er það af því við erum mest og best í öllu og aðrar þjóðir svo vit­lausar? Veit al­menningur al­mennt hvernig hús­næðis­liðurinn í ís­lensku vísi­tölunni er? Mitt mat er að ekki margir séu með það á hreinu, en það er bara mitt mat,“ segir Vil­hjálmur.

Hægt er að lesa pistill hans í heild sinni hér .