Vilhjálmur: Hálft bílastæði á íbúð og engir opnanlegir gluggar

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, vandar meirihlutanum í borginni ekki kveðjurnar í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið um helgina.

Þar gerir Vilhjálmur fyrsta áfanga íbúðabyggðar við norður/suður-flugbrautina á Reykjavíkurflugvelli að umtalsefni en þar er gert ráð fyrir byggingu um 700 íbúða. Vilhjálmur klórar sér í kollinum yfir hugmyndum um skipulag á svæðinu og bendir á að gert sé ráð fyrir fjölbýli að mestu og nokkrum raðhúsum.

„Hæð húsa í fjölbýli verði 3-5 hæðir. 90% íbúða skulu vera 2-4 herbergja. Ekki eru heimilaðir opnanlegir gluggar á þeirri hlið húsa sem snýr að flugbrautinni og eru næst henni. Í skipulaginu er kveðið á um rúmlega hálft bílastæði á íbúð og nánast öll bílastæði, 400-450, verði í sérstöku bílageymsluhúsi í miðju hverfisins, sem á „að leysa bílastæðaþörf íbúa og annarra, sem sækja hverfið“, eins og segir í skilmálum með skipulaginu. Engin bílastæði fylgja einstökum íbúðarlóðum.“

Vilhjálmur segir að varðandi hugsanlega gististarfsemi á svæðinu sé gert ráð fyrir einu stæði fyrir hver tíu herbergi fyrir gesti, auk fjögurra stæða fyrir hverja tíu starfsmenn.

„Gert er ráð fyrir að íbúar hjóli eða gangi úr bílageymsluhúsi til sinnar íbúðar í hverfinu. Ekki beint fýsilegur kostur þegar illa viðrar. Skipulagið gerir greinilega ráð fyrir því að á þessu borgarsvæði verði ekki hvassviðri, snjóþyngsli eða hálar götur og stígar.“

Vilhjálmur vísar svo í greinargerð með skipulaginu þar sem segir að staðsetning í vesturhluta Reykjavíkur sé líklegt til að draga úr notkun einkabílsins, sérstaklega þar sem bílastæði eru leyst í miðlægu bílageymsluhúsi.

„Ljóst er að núverandi meirihluti hefur gert ráð fyrir því að ofangreind uppbygging sé einungis 1. áfangi í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á öllu núverandi flugvallarsvæði í Reykjavík. Nú hafa máttarvöldin gripið í taumana. Eldgos á Reykjanesskaga hefur gert draum meirihlutans um flugvöll í Hvassahrauni og frekari uppbyggingu á flugvallarsvæðinu að engu. Síðastliðin þrjú ár hefur meirihlutinn í Reykjavík beitt sér fyrir þéttri háhýsabyggð, fyrst og fremst á miðborgarsvæðinu og í vesturhluta borgarinnar. Nánast engum lóðum hefur á þessum árum verið úthlutað fyrir einbýli, raðhús eða parhús,“ segir hann.

Vilhjálmur segir að núverandi meirihluti hafi almenna fyrirlitningu á uppbyggingu sérbýlishúsa og hatist einnig við einkabílinn – telur hann nánast mestu ógnun við mannkynið, að sögn Vilhjálms.

„Stjórnlyndi meirihlutans ríður ekki við einteyming. Fólkið skal ferðast með 100 milljarða borgarlínu hvað sem tautar og raular. Á fundi borgarstjórnar þegar umrætt deiliskipulag var samþykkt í borgarstjórn flutti Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi afar greinargóða ræðu um þetta mál, þar sem hún m.a. sagði: „Fjölmargir aðilar gerðu alvarlegar athugasemdir við skipulag þessa svæðis, m.a. Íbúasamtök Skerjafjarðar, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur“.“

Vilhjálmur segir að ekki hafi verið hlustað á þessar athugasemdir og þeim meira og minna verið stungið undir stól. „Þar á meðal athugasemdir Vegagerðarinnar vegna áhrifa aukinnar umferðar á nærliggjandi stofnvegum, s.s. Suðurgötu, Hringbraut og Njarðargötu, þar sem umferðarþunginn er þegar orðin mjög mikill. Óvild meirihlutans gagnvart flugvellinum í Reykjavík verður vart meiri.“