Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, grátbiður stjórnvöld um að framlengja það úrræði að hægt sé að ráðstafa séreignasparnaði sínum inn á húsnæðislán.
Fjölmörg heimili hafa nýtt sér þetta með góðum árangri undanfarin misseri og lækkað höfuðstól húsnæðislána umtalsvert. Nú eru hins vegar blikur á lofti því úrræðið rennur út í sumar að óbreyttu.
„Það er mat mitt að hér sé um mjög skynsamlega ráðstöfun að ræða enda umrædd ráðstöfun skattfrjáls og það er einnig mitt mat að besti lífeyrir heimilanna er að eiga skuldlitla eða skuldlausa eign þegar fólk fer á eftirlaun. Hins vegar liggur fyrir að þessi heimild heimilanna til að ráðstafa séreign sinni skattfrjálst inn á húsnæðislán sín rennur út í júní næstkomandi og ekki hefur heyrst frá stjórnvöldum hvort þau muni framlengja þetta frábæra úrræði fyrir heimilin.“
Vilhjálmur skorar á stjórnvöld að halda þessu úrræði áfram, enda mikið hagsmunamál fyrir einstaklinga að eiga skuldlítið eða skuldlaust húsnæði þegar farið er á eftirlaun.
„Það gefur fólki möguleika á að selja eign sína og fjárfesta annað hvort í minni og ódýrari eign eða fara í önnur búsetuúrræði sem bjóðast eldra fólki eins og t.d. í gegnum Búseta.
Já, húseign launafólks er okkar besti lífeyrir og í því jákvæða vaxtarstigi sem við núna loksins búum við þar sem fólk hefur í stríðum straumum komið sér úr viðjum og hlekkjum verðtryggingar og endurfjármagnað sig með óverðtryggðum húsnæðislánum er frábært að geta notað skattfrjálsan séreignarlífeyrissparnað sinn til að lækka höfuðstól húsnæðislána.
Ég ítreka áskorun mína til stjórnvalda að heimila áframhald á þessu góða úrræði heimilum til hagsbóta!“