„Leiðangur núverandi meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í málefnum Reykjavíkurflugvallar og þeirri stefnumörkun hans að flytja innanlandsflugið og kennslu- og einkaflug á flugvöll sem byggður yrði í Hvassahrauni hefur verið vandræðalegur og fálmkenndur.“
Þetta segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, í pistli í Morgunblaðinu í dag. Yfirskrift greinarinnar er: Tillaga um flugvöll í Hvassahrauni – rautt spjald. Þar gagnrýnir hann meirihlutann í borgarstjórn vegna innanlandsflugsins sem nokkur styr hefur staðið um á undanförnum árum.
„Þar hefur ríkt algjör einstefna, ekkert hlustað á gagnrýnisraddir og lítið sem ekkert samráð verið haft við rekstraraðila á svæðinu. Einnig má nefna að hvorki formleg kynning né viðræður hafa átt sér stað við bæjarstjórn Hafnarfjarðar eða leitað álits bæjarstjórnarinnar varðandi þetta mál.“
Vilhjálmur segir að meirihlutinn hafi aldrei hlustað á viðvaranir flugmanna og helstu sérfræðinga þjóðarinnar í flugmálum um að Hvassahraunið væri áhugavert sem flugvallarstæði, bæði vegna veðurfars og jarðskjálftahættu.
„Stórfelld jarðskjálftahrina mjög nálægt fyrirhuguðu flugvallarstæði í Hvassahrauni hefur séð til þess að meirihlutinn neyðist til að hlusta. Nú verður ekki lengur hægt að hunsa alvarlegar viðvaranir fyrrgreindra aðila á þeim hættulegu aðstæðum sem þetta svæði býr við. Sú stefna að flytja innanlandsflugið á flugvöll í Hvassahrauni, sem áætlað er að kosti skattgreiðendur 44 milljarða króna, er nú í ljósi stórs jarðskjálfta, 5,6 stig, skammt frá fyrirhuguðu flugvallarstæði í Hvassahrauni, lítils virði og merkingarlaus.“
Vilhjálmur segir að það skynsamlegasta sem hægt væri að gera væri að hverfa frá öllum áformum um flugvöll fyrir innanlandsflugið í Hvassahrauni. Þannig væri hægt að spara skattgreiðendum marga tugi milljarða. Vegferð vinstrimanna í borgarstjórn allt frá 2001, um að flytja flugvöllinn annað, hafi kostað skattgreiðendur hundruð milljóna króna.