Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, segir að Einars Þorsteinssonar bíði mjög erfitt verkefni þegar hann tekur við sem borgarstjóri af Degi B. Eggertssyni á næsta ári.
Vilhjálmur skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann gagnrýnir meirihlutann í borginni harðlega, en Vilhjálmur hefur skotið föstum skotum að Degi og kollegum hans í Morgunblaðsgreinum sínum að undanförnu.
Vilhjálmur segir meðal annars að sýndarmennska og óraunhæfi hafi lengi átt samleið með borgarstjóra. Vísar hann meðal annars í afgreiðslu fjárhagsáætlunar borgarinnar
„Hann fullyrti að tillögur meirihlutans væru faglegar og bitnuðu ekki á grunnþjónustu né ungmennum og æskulýðsstarfi. Algjörlega innantómar yfirlýsingar. Reynslan af störfum borgarstjóra og meirihlutans í borgarstjórn undanfarin kjörtímabil er sú að fjárhagsáætlanir meirihlutans hafa síður en svo verið faglegar og fæstar þeirra staðist, fremur flokkast undir óskhyggju.“
Hann gagnrýnir ekki bara Dag og Samfylkinguna heldur fá Píratar og Viðreisn einnig að finna fyrir því.
Í grein sinni bendir hann á að meirihlutinn í borgarstjórn hafi lagt fram 92 tillögur við afgeiðslu fjárhagsáætlunar borgarinnar fyrir árið 2023 til að mæta gríðarlegum hallarekstri borgarsjóðs.
„Þegar þessar tillögur eru skoðaðar og rýndar sést vel að þær eru að mestu sýndarmennskan ein, ekki unnar faglega og síður en svo velt við hverri krónu. Ekki síst vekur athygli að ráðist er á málefni sem tengjast börnum og unglingum. Þess í stað er haldið áfram miklum fjárveitingum í ýmis rándýr gæluverkefni meirihlutans.“
Hann veltir svo fyrir sér hverju Framsóknarflokkurinn fékk áorkað við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2023 þar sem fá ef nokkur merki sjást til batnaðar.
„Áfram þunglamaleg og flókin stjórnsýsla. Fjármálin í ólestri. Nánast ekkert framboð á lóðum undir sérbýli. Fyrst og fremst byggðir háreistir íbúðaturnar. Ný íbúðarbyggingarsvæði í fyrsta lagi árið 2025. Boðaður sex milljarða halli á rekstri borgarsjóðs. Augljóst er að verðandi borgarstjóra bíður afar erfitt verkefni. Það auðveldar honum vissulega ekki starfið að vera með fráfarandi borgarstjóra í baksætinu.“