Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, viðurkennir fúslega að hann finni ofboðslega mikið til með þeim tugþúsundum í íslensku samfélagi sem ná ekki endum saman frá mánuði til mánaðar.
„Ég fékk t.d. póst í morgun frá konu sem sýnir mér að leigan hjá henni hefur hækkað úr 190.000 krónum í 240.000 eða sem nemur 50.000 krónum eða um 26,3%. Þessi hækkun er frá apríl 2021 til júlí 2022 eða á 15 mánaða tímabili,“ segir Vilhjálmur í færslu á Facebook-síðu sinni. Tilefnið er stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun en peningastefnunefnd bankans ákvað að hækka þá um 0,75 prósentur.
„Til að hafa 50.000 kr. í ráðstöfunartekjur þarf um 80.000 kr. í launatekjur og því má segja að hjá þessari konu hafi launahækkanir sem hún hefur fengið á síðustu 4 árum farið nánast allar í að standa undir hækkun á leigu,“ segir Vilhjálmur og bætir við að þá séu eftir allar aðrar kostnaðarhækkanir sem dunið hafa á launafólki, neytendum og heimilum þessa lands á undanförnum mánuðum.
„Núna í dag hækkaði Seðlabankinn enn og aftur stýrivextina sem mun leggjast þungt á heimili með breytilega vexti og það er morgunljóst að allur ávinningur af síðasta kjarasamningi hefur verið þurrkaður upp með vaxtahækkunum, leiguverði, matarverði og öllum öðrum kostnaðarhækkunum sem opinberir og aðrir þjónustuaðilar varpa miskunnarlaust á herðar neytenda.“
Vilhjálmur segir að á sama tíma og þessi óveðursský hrannast upp lesi hann fréttir um sturlaðar launa- og fjármagnstekjur yfirstéttarinnar á Íslandi.
„Þar sem staðfestist botnlaus og skefjalaus græðgi og gríðarleg misskipting, ójöfnuður og óréttlæti. Ég get ekki séð annað en að launafólk muni rísa upp af fullri hörku þegar kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði renna út því það er ljóst að það eru svo sannarlega tvær þjóðir í þessu landi. Ég verð að taka undir með Styrmi Gunnarssyni heitnum sem kallaði valdastéttina „djúpríki“ og að þetta væri ógeðslegt þjóðfélag, engin prinsipp, engar hugsjónir!“