Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, fékk heldur kaldhæðnisleg skilaboð þegar hann sat samningafund með Samtökum atvinnulífsins í gær.
„Á miðjum þessum fundi fékk ég skilaboð frá manni sem sendi mér greiðsluseðla af húsnæðisláni sínu og vildi hann sýna mér hvernig greiðslubyrðin hefði aukist frá 1. janúar 2021 til 1. nóvember 2022,“ segir Vilhjálmur í pistli á Facebook-síðu sinni.
„Á greiðsluseðlinum frá árinu 2021 nam mánaðarleg greiðsla 202.262 kr. En á síðasta greiðsluseðli nam mánaðarleg greiðsla 328.670 kr. og hafði því hækkað um á 22 mánuðum um 126.503 kr. Eða sem nemur 63% og til að hafa ráðstöfunartekjur uppá 126 þúsund þarf launamaður að hækka í launum sem nemur 190 þúsundum á mánuði, að teknu tilliti til skatta.“
Vilhjálmur segir víðs fjarri að hann fái oft sendar svona upplýsingar um hækkun á greiðslubyrði.
„En það var hálf kaldhæðnislegt að fá svona upplýsingar á miðjum samningafundi með Samtökum atvinnulífsins,“ segir hann og bætir við að honum hafi verið ljúft og skylt að upplýsa á fundinum um þessar upplýsingar.
„Enda snúast þessar kjaraviðræður um þær gríðarlegu kostnaðarhækkanir sem launafólk og heimili hafa þurft að þola að undanförnu.“
Vilhjálmur gagnrýnir síðan Seðlabankann hressilega í lok færslunnar.
„Það er síðan rannsóknarefni að Seðlabankinn skuli beita heimilin svona vaxtaofbeldi og láta það síðan út úr sér að vaxtahækkanir liðina mánaða sé til að „búa í haginn“ fyrir heimilin og væri fróðlegt að vita hvar slík hagfræði er kennd!“