„Ég vil brýna fyrir öllum sem ekki hafa enn endurfjármagnað sig að gera það strax, enda geta heimilin aukið ráðstöfunartekjur sínar um tugiþúsunda á mánuði, eins og eftirfarandi dæmi sína,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur birti áhugaverðan pistil á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann benti á skýr dæmi um kosti þess fyrir fólk að endurfjármagna húsnæðislán sín.
Vextir lækkað mikið
„Eitt af aðalmarkmiðum okkar sem komu að gerð Lífskjarasamningsins var að auka ráðstöfunartekjur okkar félagsmanna með fleiri þáttum, en bara beinum launabreytingum. Þar horfðum við m.a. á að ná að skapa skilyrði við að ná niður því okurvaxta umhverfi sem íslenskir neytendur og heimili hafa þurft að búa við áratugum saman,“ segir Vilhjálmur sem bætir við að þetta markmið hafi gengið eftir að miklu leyti.
Nefnir hann í því samhengi að stýrivextir Seðlabankans hafi lækkað frá undirritun Lífskjarasamningsins sem var í apríl 2019 úr 4,5% í 1%.
„Vissulega má gagnrýna fjármálakerfið sem hefur því miður ekki skilað þessari miklu lækkun á stýrivöxtum Seðlabankans að fullu til neytenda en samt hafa húsnæðisvextir lækkað umtalsvert frá undirritun Lífskjarasamningsins,“ segir hann og bætir við að það liggi fyrir að fjöldi heimila hafi nýtt sér þessa vaxtalækkun og endurfjármagnað húsnæðislán sín.
„En því miður hef ég heyrt af fólki sem ekki enn hefur nýtt sér tækifæri til að endurfjármagna sig á lægri vaxtakjörum,“ segir Vilhjálmur sem brýnir fyrir fólki að gera það strax. Hann bendir svo á nokkur dæmi máli sínu til stuðnings.
750 þúsund króna sparnaður á ári
„Fyrir Lífskjarasamninganna í fyrra voru óverðtryggðir vextir í Landsbankanum 6%. Í dag eru hagstæðustu vaxtakjörin miðað við 50% veðsetningarhlutfall 3,5%. Þetta þýðir að af 30 milljóna óverðtryggðu húsnæðisláni með 6% vöxtum voru mánaðarlegir vextir í apríl 2019 150.000 kr. á mánuði. Í dag á 3,5% óverðtryggðum húsnæðisvöxtum eru mánaðarlegir vextir komnir niður í 87.500 kr. Hér er mismunur í hverjum mánuði sem nemur 62.500 kr. eða sem nemur 750.000 kr. á ársgrundvelli.“
Vilhjálmur tekur síðan dæmi af verðtryggðu húsnæðisláni, en vextir slíks láns voru 3,55% í apríl 2019 en eru núna um 2%.
„Þetta þýðir að í apríl 2019 var heimili sem var með 30 milljóna verðtryggt húsnæðislán að greiða mánaðarlega í vexti 88.750 kr. Í dag miðað við 2% verðtryggða vexti er vaxtakostnaðurinn mánaðarlega komin niður í 50.000 kr. sem gerir lækkun uppá 38.750 kr. eða sem nemur aukningu á ráðstöfunartekjum á ársgrundvelli uppá 465.000 kr.“
Vilhjálmur segir að það hafi verið þetta sem áhersla var lögð á við gerð Lífskjarasamningsins, að ná að skapa skilyrði fyrir vaxtalækkun og auka þannig ráðstöfunartekjur heimilanna samhliða hækkun launa.
„Að þessu sögðu ítreka ég mikilvægi þess að þeir sem ekki hafa endurfjármagnað sig drífi sig í að ræða við sinn lánveitenda, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir skuldsett heimili um að ræða.“