Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur rétt að ríkið selji stóran hlut í fyrirtækinu.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er ekki sáttur við slíkar fyrirætlanir:
„Menn verða að fyrirgefa mér en mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn vera orðinn „stórhættulegur“ þegar kemur að því að verja almannahagsmuni þjóðarinnar,“ segir hann á Facebook.
„Hvað er eiginlega í gangi? Það skín í gegn græðgis einkavinavæðing Sjálfstæðisflokksins sem nú vill selja eina af okkar mikilvægustu auðlindum sem þjóðin á, sem er Landsvirkjun.“
Hann segir fyrirséð að Landsvirkjun muni mala gull fyrir þjóðina á næstu árum. „Að halda að það sé til hagsmóta fyrir almenning í þessu landi að selja lífeyrissjóðum hlut í Landsvirkjun er galið. Enda öskra lífeyrissjóðirnir á arðsemi eins og enginn sé morgundagurinn og sala til þeirra mun kalla á hækkun á raforkuverði til neytenda,“ segir Vilhjálmur.
„Nei núna þarf almenningur að fara að stoppa af þennan vitleysisflokk, sem rekin er áfram daginn út og inn af græðgi einni saman.“
Ekki eru allir sammála honum og segir Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, að í þessu geti falist tækifæri: „að er nú ekki óábyrgt að sjóðstreymi Landsvirkjunar styðji við lífeyrisgreiðslur launafólks til framtíðar.
Ríkissjóður gæti þá fengið sirka 100 - 120 milljarða til framkvæmda á innviðum eða til að lækka álögur.“
Vilhjálmur segir hann meðvirkan: „Þú veist að Landsvirkjun er gullgæs þjóðarinnar sem á eftir að skila okkur gríðarlegum arðgreiðslum á komandi árum,“ segir hann og bætir við: „Þið Sjálfstæðismenn eruð að verða alveg ótrúlegir en ég veit að innst inni veist þú að þetta er rugl, enda skarpgreindur maður.“