„Mér leiðist ekki að fjalla um mikilvægi þess að íslensk heimili búi við eðlileg vaxtakjör eins og tíðkast í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Eins og Vilhjálmur bendir á er hann manna duglegastur við að berjast gegn því vaxtaokri sem verið hefur við lýði hér á landi. Vilhjálmur birtir máli sínu til stuðnings dæmi af lánum sem annars vegar voru tekin árið 2015 og hins vegar sem eru í boði í dag. Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskar fjölskyldur að halda vöxtum innan hóflegra marka.
Vilhjálmur segir:
„Til að sýna fram á hversu gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir íslensk heimili að búið sé að segja okurvöxtum stríð á hendur þá vil ég sýna tvö dæmi af 35 milljóna húsnæðisláni miðað við vaxtakjör sem voru í boði í nóvember 2015 og síðan þau kjör sem eru í boði í dag.
Í nóvember 2015 voru óverðtryggðir húsnæðisvextir af grunnláni 7,25% en í dag 3,30% Þetta þýðir að heimili með 35 milljóna húsnæðislán var að greiða 212 þúsund í hverjum mánuði í vaxtagjöld árið 2015 en í dag nema vaxtagjöld af þessu láni 96 þúsund. Mismunur sem nemur 116 þúsundum á mánuði eða 1,4 milljónum á ári!“
Vilhjálmur tekur svo annað dæmi af verðtryggðu láni. Í nóvember 2015 voru verðtryggðir grunnlánsvextir 3,65% en eru í dag 1,9%.
„Þetta þýðir að árið 2015 var heimili með 35 milljóna verðtryggt húsnæðislán að greiða 106 þúsund á mánuði í vaxtagjöld en í dag nema vaxtagjöld af slíku verðtryggðu láni 55 þúsundum. Mismunur sem nemur 51 þúsundum í hverjum mánuði eða 612 þúsundum á ári,“ segir Vilhjálmur sem endar færslu sína á þessum orðum:
„Okurvextir eru ekkert náttúrulögmál heldur mannanna verk eins og nú hefur sannast. Og því segi ég látum fjármálakerfið aldrei aftur komast upp með að níðast á neytendum með okurvöxtum!“