„Ég held að þetta mál sem lýtur að uppgreiðslukröfu sem Íbúðarlánasjóður hefur reist ólöglega á herðar íslenskum heimilum sem þar hafa tekið lán, sýni það ofbeldi sem neytendur og heimili hafa þurft að búa við á liðnum árum og áratugum þegar kemur að lánskjörum hérlendis.“
Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í pistli á Facebook-síðu sinni. Þar deilir Vilhjálmur frétt þess efnis að ríkið ætli að láta reyna á það hvort dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um ólöglegt uppgreiðslugjald lána hjá Íbúðalánasjóði geti fengið flýtimeðferð og farið rakleiðis til Hæstaréttar, en ekki fyrst til Landsréttar.
Vilhjálmur nefnir að á síðustu mánuðum hafi Ísland verið að þokast hægt í átt að þeim lánskjörum sem gerast á Norðurlöndunum. Enn sé þó langt í land. Hann fagnar því að ríkið ætli að óska eftir flýtimeðferð enda mikilvægt að eyða allri réttaróvissu eins fljótt og kostur er.
„Gleymum því ekki að fólk sem hefur ekki náð að endurfjármagna sig vegna þess að það hefur verið fast í viðjum ólöglegs uppgreiðslugjalds er að tapa jafnvel tugum þúsunda í hverjum mánuði vegna þess að það er með vexti sem eru langtum hærri en þeir sem nú bjóðast á íslenskum lánamarkaði,“ segir Vilhjálmur sem nefnir dæmi.
„Sem dæmi þá eru flest þessara lána verðtryggð með 4,15% föstum vöxtum. Í dag er hægt að fá verðtryggða vexti niður í 1,9%. Þetta þýðir að af 30 milljóna húsnæðisláni munar hér um 56 þúsund á í hverjum mánuði á þessum vöxtum sem fólk hefur verið læst inni með vegna uppgreiðslugjaldsins miðað við vexti í Landsbankanum í dag. Hér munar tæpum 700 þúsund um á ári. Það er í mínum huga ekki spurning að ríkið verður skaðabótaskylt gagnvart þessum hópi lántakanda hjá Íbúðarlánssjóði ef Hæstiréttur mun staðfesta dóm Héraðsdóms.“