Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, segist þeirrar skoðunar að engin alvöru samkeppni sé á matvöru- og eldsneytismarkaði hér á landi.
Vilhjálmur skrifaði færslu á Facebook-síðu sína um helgina þar sem hann bendir á að að lífeyrissjóðir launafólks eigi stóran hluta í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins.
Í færslunni benti hann á að lífeyrissjóðirnir eigi 76,44% í Högum en Hagar eiga til dæmis Bónus, Hagkaup, Olís, Aðföng, Banana, Zöru, Stórkaup og Eldum rétt.
„Já launafólk á Íslandi á 76,44% í þessum fyrirtækjum og hefur því miður ekkert með stjórnun í þessum fyrirtækjum að gera. Lífeyrissjóðir launafólks á Íslandi eiga líka stóran hlut í Festi eða sem nemur 73,23%,“ segir Vilhjálmur og bendir á að Festi eigi til dæmis Krónuna, Elko og N1.
„Halda menn að það sé einhver alvöru samkeppni þegar lífeyrissjóðir launafólks eiga yfir 73% í báðum þessum fyrirtækjum. Mitt mat er að það enginn alvöru samkeppni á matvöru- og eldsneytismarkaði, enda vilja lífeyrissjóðir launafólks „einungis“ fá meiri arðgreiðslur í dag en þeir fengu í gær,“ segir hann og heldur áfram:
„Þetta er galið fyrirkomulag enda liggur fyrir að launafólk er lúbarið fram og til baka á meðan það er á vinnumarkaði vegna okurs í íslensku samfélagi og rök lífeyrissjóðanna er að þeim beri skylda að ávaxta fé sjóðfélaga eins vel og hægt er. En það eru sjóðsfélagarnir sjálfir sem þurfa að greiða fyrir þá ávöxtun með gríðarlegum fórnarkostnaði þ.e.a.s með því að verðlag verður hærra!“