„Mikið ofboðsleg hræsni er í þessu fólki en nú grenja sumir atvinnurekendur eins og stunginn grís yfir því að það hagvaxtaraukinn í lífskjarasamningnum komi hugsanlega til framkvæmda á næsta ári,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Vilhjálmur gerir ummæli Eggerts Þórs Kristóferssonar, forstjóra Festa, á Vísi í morgun að umtalsefni en þar var fjallað um hagvaxtarauka lífskjarasamninganna. Hann kveður á um launahækkun vegna hagvaxtar þessa árs og gildri frá maí á næsta ári. Eggert lét hafa eftir sér að það væru bara tvær leiðir til að takast á við greiðslu á hagvaxtaraukanum; með því að hækka vöruverð eða fækka starfsfólki. Eggert er forstjóri Festa en félagið rekur Elko, Krónuna og N1.
„Að hugsa sér svona hótun en við gengum frá samningum sem kváðu á um að ef hagvöxtur á pr. mann fer upp fyrir vissa prósentu þá komi til greiðslu á hagvaxtaraukanum og nemur sú greiðsla frá 3.000 kr. til 13.000 kr. Nú vilja vissir atvinnurekendur ekkert fara eftir þessum samningum og hræsnin í þessu fólki ríður ekki við eimtening,“ segir Vilhjálmur.
Hann nefnir í þessu samhengi að Festi hafi hagnast um 2,3 milljarða árið 2020. Þá hafi velta hjá Krónunni aldrei verið meiri og hagnaður hennar hafi aukist um 22%.
„Tala svo um að eina leiðin til að borga þennan hagvaxtaauka sem muni kosta fyrirtækið 300 milljónir sé að reka starfsfólk eða hækka vöruverð. Halló, Festi skilaði 2,3 milljörðum í hagnað er ekki nóg að hagnaður sé t.d. 2 milljarðar?“
Vilhjálmur rifjar svo upp fleiri mál tengd Eggerti Þór og segir hann grenja eins og enginn sé morgundagurinn yfir því að þurfa hugsanlega að greiða fólki sem tekur laun eftir lágum launatöxtum.
„[Hann] fékk sjálfur fimm mánaða bónus árið 2019 og fóru árslaun hans úr 61,7 milljónum króna í 73,4 milljónir, eða sem nemur tæpum 12 milljóna hækkun launa á ársgrundvelli. Mánaðarlaun hans hækkuðu úr 5,1 milljón í 6,1 milljón á mánuði.
Svo koma svona græðgispungar og væla yfir því að fólkið á gólfinu sem skapar arðinn hjá fyrirtækinu eigi hugsanlega möguleika að fá aukahækkun í formi þess sem samið var í lífskjarasamningum í formi hagvaxtarauka. Mér sýnist að hroki og fyrirlitning sumra atvinnurekenda í garð sinna starfsmanna muni kalla á að launafólk skuli búa sig undir átök á íslenskum vinnumarkaði á næsta ári.“