Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er ekki vanur því að liggja á skoðunum sínum og er jafnan fljótur að gagnrýna það sem betur má fara. En hann er líka meðvitaður um mikilvægi þess að hrósa því sem vel er gert og hann sá ástæðu til þess á Facebook-síðu sinni í dag.
„Það má líka hrósa þegar vel er gert! Ég verð að segja að þetta finnst mér vera vel gert hjá Brim að taka ákvörðun um að gefa öllu starfsfólki hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við starfsaldur,“ sagði Vilhjálmur og gerði frétt Viðskiptablaðsins að umtalsefni.
Í fréttinni var greint frá því að Brim hefði ákveðið að gefa starfsfólki hlutabréf í fyrirtækinu í ljósi þess hversu vel hefur gengið. Hagnaður fyrirtækisins nam 11,3 milljörðum króna á síðasta ári og hefur fyrirtækið ákveðið að afhenda fastráðnu starfsfólki félagsins og dótturfélaga þeirra hluti í Brimi í samræmi við starfsaldur þeirra. Er áætlað að kostnaður við þetta nemi 650 milljónum króna.
Vilhjálmur bendir á að hver og einn starfsmaður, fiskvinnslufólk og sjómenn þar á meðal, fái hlut sem er að markaðsvirði 582 þúsund krónur.
„Það er gott þegar fyrirtæki átta sig á því að styrkur fyrirtækja felst í öflugu starfsfólki til sjós og lands. Það er jákvætt og til eftirbreytni þegar fyrirtæki þakkar starfsfólki sínu fyrir vel unnin störf og skilar þeim ávinningi sem skapast hefur t.d. með þessum hætti sem hér er gert,“ segir Vilhjálmur.