Vilhjálmur uggandi yfir framtíðinni: „Þetta er bara bláköld staðreynd“

Vil­hjálmur Birgis­son, for­maður Starfs­greina­sam­bandsins, var heldur svart­sýnn í við­tali í Frétta­blaðinu í dag.

„Þetta er skelfi­leg staða og ekki í anda þess sem menn voru að vonast til þegar þeir gengu frá samningi, það er alveg ljóst,“ segir Vil­hjálmur, um verð­bólguna sem mælist nú yfir tíu prósentum í fyrsta sinn frá því í septem­ber 2009.

Vil­hjálmur segir samnings­aðila hafa talið að verð­bólgan myndi fara niður á við á næstu mánuðum og þó öll von sé ekki úti sé þróunin nú í öfuga átt við þær verð­bólgu­spár sem unnið var með við gerð kjara­samninga. Hann hefur veru­legar á­hyggjur. „Þetta er graf­alvar­legt á­stand, það þarf ekkert að fara neitt í graf­götur með það.“

Að sögn Vil­hjálms er mikil­vægt að at­vinnu­lífið í heild sinni, stjórn­völd og allir sem beri á­byrgð átti sig á því að ef fram heldur sem horfir stefnir í mjög al­var­legt á­stand í ís­lensku sam­fé­lagi þegar kjara­samningar losna næst eftir rétt rúma tíu mánuði. „Þetta er bara blá­köld stað­reynd.“

Vil­hjálmur segir hækkunina koma að ó­vart. „Það virðist vera eins og menn tali hér upp verð­bólguna eins og enginn sé morgun­dagurinn. Enn og aftur er öllum byrðum varpað yfir á al­menning í landinu.“

Að sögn Vil­hjálms liggur það fyrir að þeir sem valdi hér verð­bólgu séu þeir sem hækki hjá sér vöru­verð. Þrátt fyrir að ytri að­stæður geti spilað inn í þá hafi það nú komið fram að hlutur olíu­fé­laganna hafi verið að aukast veru­lega á undan­förnum mánuðum þar sem á­lagning hefur verið að hækka.

„Þessir aðilar bera á­byrgð og við skulum ekki gleyma því að það eru nú líf­eyris­sjóðir launa­fólks sem eiga þessi fyrir­tæki. Þeir eiga yfir 70 prósent í olíu­fé­lögunum og yfir 70 prósent í mat­vöru­markaðnum,“ segir hann og bendir á að nú sé tíma­bært að líf­eyris­sjóðirnir sjálfir láti í sér heyra.

„Ekki nema græðgin sé svo mikil að menn vilji bara meiri arð­greiðslur í dag heldur en þeir fengu í gær.“

Hægt er að lesa við­tal Frétta­blaðsins hér.