„Blóðbaðið á hinum almenna vinnumarkaði heldur áfram eins og enginn sé morgundagurinn og hugur minn er hjá öllum þeim sem eru þessa dagana að missa lífsviðurværi sitt.“
Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um tíðindi dagsins. Eins og greint hefur verið frá verður rúmlega tvö þúsund starfsmönnum Icelandair Group sagt upp störfum á næstu dögum.
Í tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í dag kemur fram að uppsagnirnar nái til allra hópa innan félagsins. Þannig greindi Fréttablaðið frá því í dag að 897 flugliðar fengju uppsagnarbréf í dag og þá er viðbúið að allt að 150 flugvirkjar séu í hópi þeirra sem fá uppsagnarbréf.
Vilhjálmur kallar eftir því að allra leiða verði leitað til að verja heimili landsins í því ástandi sem nú ríkir.
„Við verðum að finna leiðir til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja störf, verja kaupmáttinn, verja lífskjarasamninginn og verja heimilin.“