Vilhjálmi ekki hlátur í huga: Nefnir dæmi um taumlausa misskiptingu á Íslandi

„Ekkert svigrúm til launahækkana! Hérna sést sú taumlausa misskipting sem ríkir í íslensku samfélagi,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hann fjármagnstekjur Gests Geirssonar, framkvæmdastjóra landvinnslu Samherja, að umtalsefni en Viðskiptablaðið greindi frá því á dögunum að hann hafi verið með 826 milljónir króna í fjármagnstekjur í fyrra. Þetta er upphæð sem samsvarar 70 milljónum króna á mánuði.

Samkvæmt sömu úttekt var hann með hærri fjármagnstekjur en sjálfur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sem var með 738 milljónir króna. Báðir eru í hópi þeirra sem höfðu mestar fjármagnstekjur á síðasta ári.

Vilhjálmur segir að misskiptingin hér á landi sé taumlaus og bendir á að í dag séu grunnlaun hjá sérhæfðum fiskvinnslumanni 372 þúsund krónur á mánuði, eða 4,4 milljónir á ári.

„Það þýðir að það þarf 185 ársgrunnlaun hjá fiskvinnslumanni til að ná þeim fjármagnstekjum sem umræddur framkvæmdastjóri hjá landvinnslu Samherja hafði á síðasta ári.“