Vil­helm: „Það vantar for­seta sem hlustar“ – Ó­lína: Ekki sofna á verðinum

For­seta­kosningar fara fram eftir fjóra daga, þann 27. júní næst­komandi, og eru ef­laust margir búnir að gera upp hug sinn fyrir löngu. Guðni Th. Jóhannes­son og Guð­mundur Frank­lín Jóns­son eru í fram­boði en skoðana­kannanir benda ein­dregið til þess að Guðni vinni stór­sigur.

Í Frétta­blaðinu í dag má finna tvær skoðana­greinar, annars vegar til stuðnings Guðna og hins vegar til stuðnings Guð­mundi.

Ó­lína Þor­varðar­dóttir, þjóð­fræðingur og fyrr­verandi þing­maður, skrifar til stuðnings Guðna en Vil­helm Jóns­son til stuðnings Guð­mundi.

Í grein sinni hvetur Ó­lína lands­menn til að sofna ekki á verðinum og veita Guðna at­kvæði sitt.

„Stundum er sagt að verstu at­vikin hendi þegar góðir menn gera ekki neitt. Margir telja að ein­mitt það hafi gerst í síðustu for­seta­kosningum í Banda­ríkjunum þegar Hilary Clin­ton beið lægri hlut fyrir Donald Trump. Ill­mælgi, rógur og niður­rif voru helsta ein­kenni þeirrar kosninga­bar­áttu,“ segir Ó­lína sem veltir fyrir sér hvort eitt­hvað sam­bæri­legt geti gerst á Ís­landi.

„Því miður er alltaf hætta á því að eitt­hvað þessu líkt geti gerst hvar sem er, sé sofið á verðinum. Nú eru fram undan for­seta­kosningar og við Ís­lendingar eigum þess kost að sýna með at­kvæðinu hvern hug við berum til starfa Guðna Th. Jóhannes­sonar. Far­sæls for­seta sem sett hefur góð­vild og fegurð í önd­vegi sinna starfa. For­seta sem gætt hefur virðingar em­bættisins, verið sann­gjarn og í­hugull í á­kvörðunum sínum og prúður í fram­göngu. For­seta sem þekkir flestum betur stjórnar­skrár­bundið hlut­verk em­bættisins, sögu þess og þýðingu. Guðni Th. Jóhannes­son og eigin­kona hans, Eliza Reid, hafa verið landi og þjóð til mikils sóma þau fjögur ár sem þau hafa setið að Bessa­stöðum,“ segir Ó­lína.

Í grein sinni segir Vil­helm að það „vanti for­seta sem hlustar“ á þjóðar­sálina, ekki síst þegar mikið liggur við. „Það er löngu orðið tíma­bært að þjóðin átti sig á að sitjandi for­seti fer ekki gegn þing­ræðinu, þó svo að honum sé ljóst að stjórn­valds­að­gerðir fari á skjön við þjóðar­hag og fyrir­heit. For­seti Ís­lands hefur í­trekað lýst því yfir að mikið þurfi að koma til svo hann sam­þykki ekki það sem kemur frá Al­þingi,“ segir Vil­helm í grein sinni.

„Guð­mundur Frank­lín hefur hrærst í við­skipta­lífi og öðrum at­vinnu­rekstri um all­langt skeið og hefur vonandi burði til að vera mál­svari rétt­lætis­kenndar og bera skyn­bragð á í hvaða far­vegi þjóðin er. Guð­mundur er örugg­lega ekki hafinn yfir gagn­rýni, engu að síður er hann vel menntaður og lífs­reyndur maður og vel máli farinn og víð­sýnn. Frank­lín hefur látið skýrt koma fram, verði hann for­seti, að hann muni beita sér með ó­hefð­bundnum hætti, t.d. varðandi um­boð til stjórnar­myndunar og innan­tóm lof­orð þing­flokkanna.“

Hvern ætlar þú að kjósa? Endi­lega segðu þína skoðun hér undir.