Vildu ekki rífa upp sárin eftir ótrúlegan brottrekstur 1978

Leikmenn Víkings Reykjavík í handboltaliði félagsins árið 1978 þekktust ekki boð Valsmanna um að vera gestir í heiðursstúku í kvöld þar sem Valur tekst á við sænsku meistarana Ystad.

Þetta ótrúlega mál er rifjað upp í Fréttablaðinu í dag.

Það var árið 1978 sem Víkingur hafði betur gegn Ystad með tveimur naumum sigrum í Evrópukeppni. Eftir afrekið var veisla haldin þeim til heiðurs í Svíþjóð. Nokkrir Víkingar tóku þá upp á því að hafa með sér jólatré af staðnum og fara með það á gististað sinn. Varð það til þess að liðinu var vikið úr keppni.

Nánar er greint frá þessu ótrúlega máli á vef Fréttablaðsins.