Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, er sögð hafa neitað að veita RÚV viðtal vegna nýs frystihúss Samherja sem var tekið í notkun á Dalvík í gær. Húsið sem um ræðir er allt hið glæsilegasta og búið nýjustu tækni.
RÚV fjallaði á vef sínum í dag um nýja frystihúsið en í fréttinni er tekið fram að forsvarsmenn Samherja hafi ekki gefið kost á viðtali vegna nýja frystihússins. Það þarf kannski ekki að koma á óvart í ljósi frétta vikunnar.
Þá er tekið fram að Katrín hafi ekki heldur viljað veita fréttastofu RÚV viðtal þar sem hún telur að RÚV skuldi Dalvíkurbyggð enn afsökunarbeiðni vegna umfjöllunar um Fiskidaginn mikla sem finna mátti í umfjöllun Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu.
Í frétt Eyjunnar, sem birtist eftir þátt Kveiks í nóvember í fyrra, lýsti Katrín óánægju sinni með umfjöllun RÚV, en þátturinn hófst á þeim orðum að aðra helgina í ágúst, ár hvert, blési Samherji til mikillar veislu á Dalvík þar sem boðið væri upp á mat og flugeldasýningu. Sunnar á hnettinum væri gullkista fyrirtækisins við strendur Namibíu. „Og þar skiptir engu máli hvaða dagur er, Samherji stendur ekki í því að gefa.“
Í viðtali við Eyjuna á sínum tíma sagði Katrín að þessi byrjun hafi verið særandi.
„Þar kemur skýrt fram í upphafi, að Samherji bjóði til veislu. Og þarna segi ég að umsjónarmenn þessa þáttar og RÚV, eigi að biðja íbúa Dalvíkurbyggðar og þá fjölmörgu styrktaraðila sem bjóða til Fiskidagsins mikla, afsökunar. Það eru á annað hundrað styrktaraðilar sem koma að Fiskideginum mikla fyrir utan alla íbúa Dalvíkurbyggðar sem leggja nótt við dag að fegra umhverfið og kosta miklu til sjálfir að bjóða fólki heim í fiskisúpu vinna að ýmsum hætti að Fiskideginum. Upphaf þessara þáttar er köld vatnsgusa framan í gestrisna íbúa Dalvíkurbyggðar. Það er verulega sárt að sjá svona samsetningu í upphafi þáttar, það var verulega særandi.“
Svo virðist sem Katrín sé enn ósátt og engin afsökunarbeiðni hafi borist frá RÚV.