„Skilaboðin sem sóttvarnaryfirvöld senda út í samfélagið skipta gríðarlegu máli núna,“ segir Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi varaþingmaður.
Viktor Orri skrifar færslu á Facebook um mál Víðis Reynissonar en hann smitaðist sem kunnugt er af COVID-19 á dögunum. Víðir hefur verið gagnrýndur fyrir að taka á móti miklum fjölda gesta á heimili sitt áður en hann smitaðist, en alls komu tólf gestir á heimili Víðis og konu hans helgina áður en smitið greindist.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kom inn á þetta á upplýsingafundi almannavarna í morgun þegar hann var spurður hvort þessi gestagangur hafi verið í lagi.
Þórólfur sagði mikilvægt að talsmenn sóttvarna fylgi eigin tilmælum en hann vildi ekki leggja neinn dóm á mál Víðis. Ekki væri rétt að dæma þá sem smitast eða þurfa að fara í sóttkví og öll séum við mannleg. Benti Þórólfur á að tíu manna fjöldatakmörkun væri í gildi, tveggja metra regla og persónulegar sóttvarnir en ekkert útgöngubann.
Viktor Orri segir að Víðir hafi staðið sig verulega vel við að leiða viðbrögð við faraldrinum. Tekur hann undir þau orð Þórólfs að öll séum við mannleg. Sjálfur „hlýði“ hann ekki alltaf eigin hugmyndum um hvað er rétt og best að gera og ekki sé hægt að ætlast til þess að hann sé fullkominn frekar en við hin.
„Það sem mér finnst eiginlega talsvert alvarlegra er hvernig Þórólfur talaði í dag um þetta. Fyrir mér er alveg augljóst að þó svo *reglur* hafi aðeins kveðið á um 10 manna samkomutakmörk og 2ja metra reglu, þá voru *tilmælin* þess efnis að við ættum öll að reyna að lágmarka hvers kyns hittinga og mannamót. Það er það sem ég og mín fjölskylda og aðrir í kringum mig hafa verið að gera og ég held að við þurfum áfram að reyna að standa saman um það,“ segir Viktor og bætir við að skilaboðin sem sóttvarnaryfirvöld senda núna út í samfélagið skipti miklu máli. Þá skipti samstaðan miklu nú þegar jólin eru á næsta leiti.
Viktor Orri vinnur sem nýdoktor við rannsóknarverkefnið TrustGov í Bretlandi þar sem kannanir eru meðal annars nýttar til að rannsaka traust til stjórnmála. Vekur hann athygli á því að fulltrúar verkefnisins framkvæmdu rýnihópaviðtöl í Bretlandi í sumar þar sem komu fram skýr merki um að brot Dominic Cummings, helsta ráðgjafa Boris Johnson forsætisráðherra, og afsakanir sem Johnson og fleiri báru á borð, hefðu haft talsverð áhrif á vilja þjóðarinnar til að fylgja þeim tilmælum sjálf.
Cummings þessi ferðaðist rúma 400 kílómetra með fjölskyldu sinni í marsmánuði þó að útgöngubann væri í gildi og stjórnvöld brýndu fyrir fólki að halda sig heima. Cummings og eiginkona hans voru á þessum tímapunkti farin að sýna einkenni COVID-19-sýkingar.
„Aðrar rannsóknir hafa síðan bent til þess sama. Í stuttu máli þá skipta samræmd og skýr skilaboð stjórnvalda um daglega hegðun verulegu máli upp á árangur við að hemja þennan faraldur og Þórólfur getur ekki frekar en Johnson leyft sér að óskýra þau tilmæli til að vernda þá sem standa nærri honum (hvort sem sú hvöt er meðvituð eða ómeðvituð).“