Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins vandar Degi B. Eggertssyni borgarstjóra ekki kveðjurnar á Fésbókarsíðu sinni í dag. Tilefnið eru lóða- og íbúðarmál í Reykjavík. Vigdís segir Dag ávallt kenna öðrum um þá stöðu sem upp er komin.
„Borgarstjóri ætlar að sýna töfrabrögð í ráðhúsinu seinna í dag - þar ætlar hann að telja íbúðir sem hann flokkar fullkláraðar þó aðeins sé búið að gefa út byggingarleyfi - byggingarleyfi sem jafnvel eru komin í salt vegna óhagstæðra aðstæðna sem borgin sjálf hefur skapað,“ segir Vigdís í færslu sinni.
Þar deilir hún frétt sem segir frá að í lóðaúthlutunaráætlun Reykjavíkurborgar til næstu tíu ára séu tilgreindar lóðir undir 10.260 íbúðareiningar.
Því næst greinir hún frá bókun sinni í borgarráði í gær: „Fyrr í vikunni var gefinn út um 60 blaðsíðna uppbyggingabæklingur sem byggir á glærusýningum sem ganga allar út á þéttingarreiti og látið er vera að brjóta nýtt land. Fólk hefur umvörpum flúið þessa þéttleikastefnu Reykjavíkurborgar í önnur sveitarfélög sem eru um klukkustunda akstur frá borginni,“ segir Vigdís í bókun sinni.
Hún heldur áfram: „Hér er talað tungum tveim því mikið af því fólki sem flúið hefur Reykjavík vinnur eftir sem áður í borginni. Staðreyndirnar eru að fólk vill meira rými, græn svæði, litla garða, birtu og sólarljós. Í raun er þéttingarstefna Reykjavíkur mannfjandsamleg út frá lýðheilsusjónarmiðum og ekki síður mengunarvöldum þegar svo gríðarlega er þrengt að umferð. Líklega er þéttingarstefnan mesta umhverfisslys sem átt hefur sér stað á þessari öld,“ segir Vigdís enn fremur frá bókun sinni.
Í athugasemd undir færslu sinni deilir Vigdís frétt Mbl.is. Þar segir Dagur að lóðaskortur í Reykjavík sé ekki tilkominn vegna fárra úthlutaðra lóða af borginni, heldur sökum þess að allir viðskiptabankarnir hefðu skrúfað fyrir fjármögnun til verktaka.
Þessu tekur Vigdís alls ekki vel: „Borgarstjóri er meira en sorglegur – finnur alltaf sökudólga – þessum manni er fyrirmunað að líta í eigin barm,“ segir Vigdís og skefur ekkert af hlutunum.
Hún fær ágætis undirtektir meðal Fésbókarvina sinna í athugasemdunum. Þar segir Anna nokkur: „Það verður að koma þessum meirihluta í burtu og það strax þetta er orðið gott.“
Þá segir Gunnar nokkur Þórarinsson: „Ég trúi ekki að fólk kaupi þessa lyga sögu enn og aftur. Raunheimar segja allt aðra sögu eins og fólk finnur á eigin skinni.“