Leikkonan Vigdís Hafliðadóttir er með áhugaverða hugvekju á samfélagsmiðlinum Twitter sem hefur vakið gríðarlega mikla athygli. Þar skrifar hún um Ítalíu og ber saman íslensk og ítölsk lífsgæði.
Hún segist elska Ítalíu, hafa verið þar í skiptinámi og oft farið að ferðast að heimsækja fólkið sitt. Vinkona hennar hafi nú verið að fá sæmilega launaða vinnu, með í kringum 1000 evrur á mánuði (tæpar 140 þúsund íslenskar krónur) fyrir 9 tíma vinnudag, eftir að hafa verið áður með 300 evrur, (tæpar 42 þúsund krónur) til að öðlast reynslu.
„Fjölskyldan mín á Ítalíu borgar himinháa orkureikninga á mánuði sem hafa hækkað með stríðinu. Nú vita þau ekki hvaðan þau fá hita og rafmagn í vetur sem og fleiri lönd í Evrópu sem búa við mikla óvissu í orkumálum,“ skrifar Vigdís.
„Þau þurfa líka bæði að vinna fram yfir sjötugt til að eiga rétt á ellilífeyri sem eru 800 evrur á mánuði.“
Vigdís bætir við að lokum, því sem vakið hefur mesta athygli:
„Já pizzan kostar 8 evrur og vínglas 3-4, landið er fallegt, sjórinn er hlýr og fólkið gott og skemmtilegt. En það er aðeins annað að fara í frí eitthvert en að búa þar.“
Þá segir Vigdís: „Ég fyllist allavega yfirleitt þakklæti fyrir að búa á Íslandi þegar ég fer til útlanda. Líka í súld. Ég hef notið þess mjög að búa í útlöndum og það er margt eftirsóknarvert í öðrum löndum sem eykur lífsgæði og ýmsilegt sem Ísland gæti lært af.“
Hún segir auðvitað mikilvægt að sofna aldrei á verðinum og hætta ekki að reyna að bæta lífsskilyrði fólks og kjör. „En mér finnst ómetanlegt að búa þar sem er ferskt loft, ódýr og græn orka, náttúra, atvinna og gott vatn.“