Vigdís segir starfsemi leik- og grunnskóla „skrúfast“

„Það er rosalegt álag á starfsmönnum borgarinnar sem eru að halda út leikskóla- og grunnskólastarfi. Þessir aðilar eru umvörpum að skila inn vottorði vegna kvíða og vinnuálags - sem þýðir það að starfsemin skrúfast smám saman.“ Þetta segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, í færslu á Facebook.

Í umræðum í borgarstjórn Reykjavíkur um viðbrögð við COVID-19 faraldrinum bókaði Vigdís tillögu um að leikskólum og grunnskólum verði lokað fram yfir páska. Sú tillaga var felld.

Hún segir að í gærkvöldi hafi hún fengið símtal frá leikskólakennara í gærkvöldi þar sem álagið var rætt.
„Ég tel að við verðum að grípa inní þá þróun og hvíla skóla- og leikskólastarfsfólk fram yfir páska
Það er nú þegar búið að loka skólum í Reykjavík vegna veirunnar - og þá skapast mikill ótti hjá mörgum.“