Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, mun í dag leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar að öll ljósastýringarmál á höfuðborgarsvæðinu fari til Vegagerðarinnar eða Betri samgangna Ohf.
Vigdís skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hún bendir á að allir séu orðnir langþreyttir á umferðarástandinu í Reykjavík þar sem markvisst er þrengt að fjölskyldubílnum.
„Ekki lagaðist ástandið við snjóþyngsli síðustu vikna sem minnir okkur á það á hvaða breiddargráðu við búum. Borgin er búin að vera má segja ófær í marga daga. Skiptir samgöngumáti hvers og eins ekki máli því snjóruðningsþjónustu var ekki sinnt. Borgin varð ófær fyrir alla, fjölskyldubílinn, strætó, hjólandi, gangandi og rafskútunotendur. Hin svokallaða borgarlína leysir ekki snjóþunga og lélega vetrarþjónustu Reykjavíkur,“ segir Vigdís í grein sinni.
Tilgangurinn að tefja umferð
Hún segir að ljósastýringarmálin séu sérkapítuli út af fyrir sig og haldið í greipum Reykjavíkur.
„Umferðarljósin hafa þann eina tilgang að tefja umferð. Því þarf að koma yfirráðum yfir umferðarljósastýringu úr höndum Reykjavíkurborgar. Á þeim grunni legg ég fram tillögu í dag á borgarstjórnarfundi að á grunni samgöngusáttmálans fari öll ljósastýringarmál á höfuðborgarsvæðinu til Vegagerðarinnar og/ eða Betri samgangna ohf., ásamt innkaupum á búnaði, viðhaldi og öðru sem undir ljósastýringar fellur.“
Vigdís rifjar upp að ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, að Reykjavík meðtalinni, hafi undirritað samkomulag í september 2019 um uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára, oftast kallað samgöngusáttmálinn.
Umferðin stopp í Reykjavík
Bendir hún á að eitt af forgangsmálum hans hafi verið að bæta umferðarstýringu með því að nýta nýjar tæknilausnir. Vigdís segir að Reykjavíkurborg hafi ekki staðið við þennan þátt samkomulagsinsaf hálfu Reykjavíkurborgar og því megi segja að um forsendubrest sé að ræða.
„Ekkert hefur verið gert til nýta nýjar tæknilausnir og umferðarljósakerfið hefur ekki verið bætt. Síðan samkomulagið var gert hefur ljósastýringarkerfið áfram verið í höndum Reykjavíkurborgar sem hélt uppteknum hætti með því að skipta við sama aðila, og má rekja þau viðskipti til ársins 2005. Það er engin framtíðarsýn að áfram eigi að nota sama gamla búnaðinn án þess að skoða hvað er að gerast í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þessir viðskiptahættir hafa síðastliðin misseri byggst á ólöglegum útboðum og innkaupum sem sífellt eru kærð til Kærunefndar útboðsmála með tilheyrandi töfum og kostnaði. Á meðan Reykjavíkurborg fylgir ekki lögum um opinber innkaup, blæðir borgarbúum, íbúum í nágrannasveitarfélögum og landsmönnum öllum því umferðin er stopp í Reykjavík. Þessi vinnubrögð tefja þennan málaflokk úr öllu hófi og því á viðfangsefnið að vera í höndum Vegagerðarinnar og/eða Betri samgangna ohf.“