Vig­dís segir Græna planið vera al­gjört hall­æris­plan – „Vá - því­lík froða“

„Vá - því­lík froða og saman­safn af orð­skrúði pakkað inn í grænar um­búðir með um­hverfis­vænni slaufu. Upp­talning á tæp­lega 100 at­riðum sem gæti hugsan­lega fallið undir eitt­hvað grænt. Ég hef aldrei séð jafn hall­æris­lega greinar­gerð með nokkurri til­lögu síðan ég settist í borgar­stjórn.“

Þetta segir Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, í að­sendri grein á vef Vísis.

Græn leið úr kreppunni

Dagur B. Eggerts­son, borgar­stjóri í Reykja­vík, mælti í gær fyrir til­lögu í borgar­stjórn um Græna planið, víð­tæka á­ætlun um fjár­festingar, fram­kvæmdir og at­vinnu­sköpun í Reykja­vík. Í grein sinni í Frétta­blaðinu í dag segir Dagur:

„Græna planið – sem tekur til þrettán þátta – er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu um að leiðin út úr kreppunni verði græn – með því að veðja á þrótt­­mikið og fjöl­breytt borgar­hag­­kerfi sem hvílir á stoðum traustra grænna inn­viða.“

Hann bætir svo við að á næstu vikum verði haldnir sam­ráðs­fundir með hags­muna­aðilum, aðilum vinnu­markaðarins, há­skólum, fyrir­tækjum í borginni og öðrum mikil­vægum sam­starfs­aðilum um grænt efna­hags­plan til næsta ára­tugar.

Brot á samgöngusáttmála?

Vig­dís gefur ekki mikið fyrir þessar hug­myndir ef marka má skrif hennar á Vísi.

„Greini­legt er að meiri­hlutinn er kominn í mikil vand­ræði á öllum sviðum borgarinnar fjár­hags­lega og fag­lega. Þá er gripið í svona hókus, pókus trix, sjón­hverfingar og boðað til blaða­manna­fundar,“ segir hún.

Vig­dís vill meina að Græna planið feli í sér full­komið brot á sam­göngu­sátt­mála borgarinnar og „því al­gjört hall­æris­plan“ eins og hún orðar það. „Í greinar­gerð með planinu segir að borgar­línan, hjólandi og gangandi eru sett í al­gjöran for­gang í sam­göngu­málum.“

Segir Vig­dís að Dagur hafi enn eina ferðina opin­berað að undir­skrift hans í samningum við ríkið sé ekki pappírsins virði.

„Talið er upp í á­herslu­punktum í græna hall­æris­planinu: borgar­lína, hjól­reiða­net höfuð­borgar­svæðisins, stokkar, göngu­borgin Reykja­vík, hjól­reiða­á­ætlun Reykja­víkur­borgar, raf­væðing hafna, raf­væðing al­mennings­sam­gagna, sam­göngu­mið­stöð Reykja­víkur og til­rauna­verk­efni með báta­strætó, já þið lásuð rétt báta­strætó. Ekki er eitt orð um Sunda­braut. Á meðan er í fyrsta for­gang í sam­göngu­sátt­málanum um­ferðar­stýring og segir þar að ráðist verði strax í mark­vissar að­gerðir til að nýta nýjar tækni­lausnir og bæta um­ferðar­ljósa­kerfi á höfuð­borgar­svæðinu, Sæ­brautar­stokkur sem er ein for­senda hug­mynda um Sunda­braut, Miklu­brautar­stokkur, Arnar­nes­vegur – Rjúpna­vegur um Breið­holts­braut, gatna­mót við Bú­staða­veg, og fram­kvæmdir við Miklu­braut sem fram­hald af fram­kvæmdur austur yfir gatna­mót á Kringlu­mýrar­braut.“

Grein Vigdísar í heild.