Vig­dís segir að­stoðar­mann Sigurðar Inga ljúga um um­mæli hans: „Særandi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni“

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sóknar­flokksins er sagður hafa látið niðrandi orð falla í garð Víg­dísar Häsler fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Ís­lands á fimmtu­dags­kvöldi í boði Fram­sóknar­flokksins.

Starfs­fólk Búnaðar­þings fer á milli flokka í svo­kölluð flokka­boð í að­draganda Búnaðar­þings. Þegar til stóð að taka mynd þar sem þing­menn áttu að bera Vig­dísi í planka, eða tollera hana, þá sagðist Sigurður Ingi ekki vilja taka þátt í þessu, „með þessari svörtu,“ sagði hann að sögn heimildar­manns.

Ing­veldur Sæ­munds­dóttir, að­stoðar­maður Sigurðar Inga, þver­tók fyrir um helgina að hann hafi notað slík orð, hún hafi staðið við hlið hans þegar mynda­takan átti að eiga sér stað.

Vig­dís, sem hefur hingað til ekki viljað tjá sig um málið, steig fram í dag og sakar aðstoðarmann Sigurðar Inga um lygar.

„Aldrei hélt ég að ég þyrfti að setjast niður og skrifa svona yfir­lýsingu. Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­ferði eða annað skil­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töluðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerðist. Á fimmtu­daginn sl. sótti starfs­fólk Bænda­sam­takanna, þar með talin ég flokka­boð til stjórn­mála­flokka sem haldin eru í tengslum við Búnaðar­þing og löng hefð hefur verið fyrir,“ skrifar Vig­dís.

„Starfs­fólk Bænda­sam­takanna óskaði eftir því að inn­viða­ráð­herra og fleiri væru með í mynda­töku sem ég kom síðar að. Þar voru afar særandi um­mæli látin falla og heyrði bæði ég það sem og starfs­fólk sam­takanna. Að­stoðar­maður ráð­herrans var ekki við hlið hans þegar um­mælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þessari mynda­töku sýna það án alls vafa,“ heldur Vig­dís á­fram.

„Það er særandi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýringar eru notaðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera á­byrgð á þeim orðum sem ráð­herrann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríðar­legt sam­fé­lags­mein og grassera á öllum stigum sam­fé­lagsins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn. Ég mun ekki tjá mig um þetta frekar heldur kýs núna að horfa fram á veginn að vinna úr þeim góðu niður­stöðum sem fram komu á Búnaðar­þingi,“ skrifar Vig­dís.