Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, vandar Degi B. Eggertssyni borgarstjóra ekki kveðjurnar í grein sem Vigdís birti á Vísi.is nú síðdegis. Í greininni segir Vigdís hreint út að Dagur hafi sýnt af sér hroka og yfirgengilega frekju.
„Dagur B. Eggertsson var kosinn fyrst í borgarstjórn árið 2002. Þar hefur hann setið óslitið síðan eða í tæp 20 ár. Þegar aðilar sitja svo lengi á valdastóli þá fara þeir að sýna af sér hroka og yfirgengilega frekju,“ segir Vigdís í grein sinni og bætir við:
„Honum mislíkar oft skoðanir og bókanir okkar í meirihlutanum. Hann hefur oft tekið reiðiköst á fundum og frussar á okkur skammaryrðum. Embættismenn sitja hnípnir hjá. Þetta er oft á tíðum ógnandi tilburðir sem líkja má við kúgun og þöggun. Hann telur að hann hafi boðvald yfir okkur, en það er siðlaust og óheiðarlegt því við sækjum okkar umboð til kjósenda en ekki hans eða ráðhússins,“ segir Vigdís.
Grunnt hefur verið á því góða milli meirihlutans og minnihlutans á yfirstandandi kjörtímabili og hafa skotin gengið á milli. Á dögunum fagnaði Dagur B. Eggertsson niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem sýndu nokkuð sterkt fylgi Samfylkingarinnar í borginni en aftur á móti heldur daprari niðurstöðu fyrir Miðflokkinn. Við það tilefni sagði Dagur:
„Enginn borgarfulltrúi hefur fengið eins mikið pláss í fjölmiðlum og Vigdís Hauksdóttir. Hún ætlaði að fá 3-4 fulltrúa í kosningum en fékk einn. Lækkar nú enn fylgið og fær 5% og Flokkur fólksins dettur út með 2,8%. Gleðilegt að upphrópanir, bull og skítkast fái ekki meira,“ sagði Dagur á Twitter-síðu sinni.
Nú virðist vera komið að skuldadögum því Vigdís hjólar í borgarstjóra í grein sinni og segir að hann hafi á löngum valdatíma komið sér upp ógnarstjórn.
„Í fjögur kjörtímabil hefur verið ógeðslegur, ógnvekjandi kúltúr í ráðhúsinu. Dagur B. Eggertsson hefur verið í valdastöðu nær allan tímann og hefur skapað þessi vinnubrögð. Ógeðskúltúrinn á kjörtímabilinu 2006-2010 var slíkur að Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi var neyddur til að skila læknisvottorði áður en hann myndaði meirihluta með Sjálfstæðisflokknum,“ segir Vigdís.
Þá segir hún að kjörtímabilið 2014 til 2018 hafi verið hræðilegt fyrir þá borgarfulltrúa sem „ekki voru í náðinni hjá ógnarstjórnandanum“ segir Vigdís og á þar við Dag.
„Skemmst er að minnast þess að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, fékk aldrei vinnufrið og var beitt harkalegu andlegu ofbeldi af meirihlutanum. Kjartan Magnússon stóð líka upp í lok kjörtímabilsins og lýsti framkomu borgarfulltrúa meirihlutans í sinn garð. Hann lét eitt sinn bóka að hann hafi verið hrakyrtur og svívirtur af þáverandi formanni borgarráðs.“
Vigdís segir að ekkert betra hafi tekið við þegar yfirstandandi kjörtímabil hófst árið 2018 og hún var kjörin í borgarstjórn. „Dagur B. Eggertsson er áfram aðal spaðinn í þessu öllu og nær að berja saman viðreistan meirihluta með Viðreisn. Hann heldur völdum – hann heldur á öllum spilunum og ógeðskúltúrinn heldur áfram,“ segir Vigdís sem segir að snemma hafi orðið harðir árekstrar.
Í langri grein sinni kemur Vigdís víðar við en greinina má lesa í heild sinni hér.