Vig­­dís ó­­sátt: „Nei hættið þið nú“ – Gæti alveg eins sagt Reyk­víkinga vera illa gefna

Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, segir að Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri og meiri­hlutinn í Reykja­vík séu í stríði við rekstrar­aðila og stóran hluta Reyk­víkinga.

Vig­dís gerir þetta að um­tals­efni í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag þar sem hún vísar meðal annars í niður­stöður skoðana­könnunar sem birtar voru í síðustu viku um af­stöðu Reyk­víkinga til lokunar gatna og við­tal Morgun­blaðsins við Sigur­borgu Ósk Haralds­dóttur, for­mann skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, um niður­stöður könnunarinnar.

Sam­kvæmt könnuninni er meiri­hluti and­vígur því að Lauga­vegur og Banka­stræti, frá Hlemmi að Þing­holts­stræti, og neðri hluti Skóla­vörðu­stígs verði gerður að göngu­götu allt árið um kring. Mjótt er á mununum en 44,2% sögðust því and­víg en 41,1% sögðust hlynnt. Þá sögðust fleiri vera ó­lík­legir til að heim­sækja mið­borgina ef um­ræddar götur yrðu gerðar að göngu­götu allt árið um kring.

Vig­dís vísar í um­mæli Sigur­borgar í Morgun­blaðinu í grein sinni:

„…Sagði hún að könnunin væri á­kall um að kynna betur kosti göngu­gatna! Nei hættið þið nú – hún hefði alveg eins getað sagt að Reyk­víkingar væru illa upp­lýstir og jafn­vel illa gefnir. Í það minnsta „þyrftu þeir meiri fræðslu“ til að átta sig á hvernig göngu­götur virka og hvaða á­hrif þær hafa í heiminum og þetta væri ekkert öðru­vísi hér á Ís­landi eins og hún orðar það í við­talinu. Þau viti það sko. Hrokinn ríður ekki við ein­teyming hjá þessu fólki sem telur sig vera að stjórna borginni.“

Vig­dís flytur á fundi borgar­stjórnar í dag til­lögu sem varðar lokun Lauga­vegar fyrir fjöl­skyldu­bílum og snýst hún í aðal­at­riðum um að borgar­stjórn falli frá á­kvörðunum um götu­lokanir sem sam­þykktar voru í síðustu viku. Einnig leggur hún til að fá álit eða um­sögn frá lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu, al­manna­vörnum höfuð­borgar­svæðisins og Neyðar­línunni um götu­lokanirnar og að­gengi neyðar­bíla að svæðinu hvað varðar þá á­kvörðun að loka Lauga­veginum frá Frakka­stíg að Lækjar­götu.

„Með til­lögunni fylgir greinar­gerð sem er svo­hljóðandi: Hið lokaða svæði er 100% stærra en árið 2019 og er því um mjög víð­tækar og í­þyngjandi að­gerðir að ræða. Gangi þessar á­ætlanir eftir er ljóst að að­gengi sjúkra­bíla, slökkvi­liðs­bíla og lög­reglu verður mjög skert, því meiri­hlutinn boðar að fjölga eigi mjög úti­svæðum fyrir utan veitinga­staði á þann hátt að hægt verði að koma fyrir stólum, borðum, blóma­kerjum og bekkjum á göngu­götunni sem til verður. Þessi til­laga snýst um að hægt verði að bjarga manns­lífum þegar vá steðjar að, s.s. bruni, heilsu­fall, vopnuð rán á af­greiðslu­tíma verslana og veitinga­húsa og líkams­á­rásir.“