Nítján manns sóttu um að stöðu bæjarstjóra í Hveragerðisbæjar. Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis, Aldís Hafsteinsdóttir, hefur tekið við stöðu bæjarstjóra í Hrunamannahreppi.
Listi umsækjenda um bæjarstjórastöðu Hveragerðisbæjar hefur verið birtur en meðal umsækjenda eru Glúmur Baldvinsson, fyrrum frambjóðandi lýðræðisflokksins en hann sótti meðal annars um stöðu bæjarstjóra í Mosfellsbæ, Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður og borgarfulltrúi, og Karl Gauti Hjaltason, fyrrum þingmaður Miðflokksins en hann missti þingsæti sitt sem jöfnunarþingmaður eftir talningaklúðrið í Borgarnesi eftir síðustu Alþingiskosningar.
Listinn er eftirfarandi:
- Ágúst Örlaugur Magnússon - Vaktstjóri
- Geir Sveinsson - Sjálfstætt starfandi
- Glúmur Baldvinsson - Sjálfstætt starfandi
- Jón Aron Sigmundsson - Sjálfstætt starfandi
- Karl Gauti Hjaltason - Fyrrverandi þingmaður
- Karl Óttar Pétursson - Lögmaður
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir - Forstjóri
- Konráð Gylfason - Framkvæmdastjóri
- Kristinn Óðinsson - CFO
- Lína Björg Tryggvadóttir - Skrifstofustjóri
- Magnús Björgvin Jóhannesson - Framkvæmdastjóri
- Matthildur Ásmundardóttir - Fyrrverandi bæjarstjóri
- Sigurður Erlingsson - Stjórnarformaður
- Sigurgeir Snorri Gunnarsson - Eftirlaunaþegi
- Valdimar O. Hermannsson - Fyrrverandi sveitarstjóri
- Vigdís Hauksdóttir - Fyrrverandi borgarfulltrúi
- Þorsteinn Þorsteinsson - Deildarstjóri
- Þórdís Sif Sigurðardóttir - Fyrrverandi sveitarstjóri
- Þröstur Óskarsson - Sérfræðingur