Vig­dís með yfir­lýsingu: „Málinu er ekki lokið af minni hálfu“

„Þessi vinnu­brögð eru til­burðir til þöggunar og til þess fallin að koma í veg fyrir ríka eftir­lits­skyldu kjörinna full­trúa. Málinu er ekki lokið af minni hálfu enda hef ég ríka laga­skyldu sem kjörinn full­trúi.“

Þetta segir Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, í yfir­lýsingu sem hún birtir á Face­book-síðu sinni. Til­efni yfir­lýsingarinnar er færsla Helgu Bjargar Ragnars­dóttur, skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu borgar­stjóra og borgar­ritara sem birtist í morgun.

Um þessar mundir eru tvö ár frá því að dómur féll í héraðs­dómi í máli sem var höfðað var gegn Reykja­víkur­borg. Þar var á­minning sem Helga hafði veitt felld úr gildi. Helga Björg benti á að hún hafi komið fyrir dóminn sem vitni en ekki aðili máls. Hún hafi þó orðið þess á­skynja að fyrir dómi hafi hún verið borin þungum sökum og hún lagt starfs­mann í ein­elti.

„Niður­staða dómsins er sem fyrr segir að áminningin skuli felld úr gildi, en þar er jafn­framt fjallað um mig með afar ó­venju­legum hætti. Þó skýrt komi fram að ég hafi verið hæf til að veita um­rædda áminningu og þar með hafi óvild eða ein­elti ekki búið að baki, er þar að finna gildis­hlaðnar og meiðandi full­yrðingar þar sem mér er m.a. líkt við hring­leikahússtjóra og áréttað að mér beri að sýna mér eldra fólki sérs­taka virðingu,“ sagði Helga. Benti hún á að Reykja­víkur­borg hafi ekki á­frýjað dómnum en í kjöl­farið hafi hún gert í­trekaðar til­raunir til að fá stjórnunar­hætti sína rann­sakaða – án árangurs.

„Síðan þá hefur átt sér stað sam­felld og súrrealísk at­burðarás sem ég hef haft tak­markaða möguleika á að bregðast við. Óvægin og gildis­hlaðin orð dómarans hafa ítrekað verið dregin fram í opin­berri um­ræðu, á vett­vangi borgarráðs, borgar­stjórnar og á sam­félags­miðlum,“ sagði hún.

Í yfir­lýsingu Vig­dísar segir hún að svo virðist vera sem Helga Björg viður­kenni ekki dóms­niður­stöður Héraðs­dóms Reykja­víkur í málinu. „Og þá spyr ég mig hvers vegna eðli­leg leið var ekki farin innan dóms­kerfisins og málinu á­frýjað til æðra dóm­stigs. Þess í stað var dómnum unað og Reykja­víkur­borg greiddi bætur auk alls máls­kostnaðar.“

Vig­dís segir einnig að þrátt fyrir skýra niður­stöðu Héraðs­dóms í málinu hafi Helga haldið starfi sínu án á­minningar á meðan fjár­mála­stjóri ráð­hússins var færður til í starfi.

„Eina sem ég gerði var að vitna orð­rétt í dóms­niður­stöðu Héraðs­dóms Reykja­víkur sem allir vita að eru opin­ber gögn og höfðu þá þegar verið birt í fjöl­miðlum og fjallað um þau þar.“

Vig­dís segir að síðan þá hafi hún legið undir á­sökunum og per­sónu­legum á­rásum „með þremur hótunar­bréfum sem mér voru send í á­byrgðar­pósti að kvöldi til á heimili mitt – þar sem mér var hótað að vera dregin fyrir siða­nefnd Sam­bands ís­lenskra sveitar­fé­laga fyrir það eitt að hafa vitnað í dóminn.“

Vig­dís segir að þessi vinnu­brögð séu til­burðir til þöggunar og til þess fallin að koma í veg fyrir ríka eftir­lits­skyldu kjörinna full­trúa. Þá segir hún að málinu sé ekki lokið af hennar hálfu enda hafi hún ríka laga­skyldu sem kjörinn full­trúi.

YFIRLÝSING vegna stöðuuppfærslu Helgu Bjargar Ragnarsdóttur, skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra- og borgarritara...

Posted by Vigdís Hauksdóttir on Föstudagur, 12. júní 2020

Um þessar mundir eru tvö ár frá því dómur féll í áminningarmáli sem höfðað var gegn Reykjavíkurborg, þar sem...

Posted by Helga Björg Ragnarsdóttir on Föstudagur, 12. júní 2020