Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, ber upp sína síðustu tillögu á yfirstandandi kjörtímabili í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Vigdís var á þingi fyrir Framsóknarflokkinn frá 2009 til 2016 áður en hún skellti sér í borgarmálin.
Á fundi borgarstjórnar í dag mun Vigdís leggja fram þá tillögu að farið verði í tilraunaverkefni til eins árs – frá og með 1. september næstkomandi – að bjóða upp á gjaldfrjálsan strætó.
„Greiðslur Reykjavíkur inn í reksturinn skuli vera í samræmi við eignarhlut borgarinnar í Strætó eða sem nemur 60,3%. Þessi tillaga var ofarlega á lista Miðflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum 2018,“ segir Vigdís í færslu á Facebook-síðu sinni.