Vigdís: Hugur minn hjá Degi og fjölskyldu hans

Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, segir að hugur hennar sé hjá Degi og fjöl­skyldu hans.

Eins og greint var frá í gær var skotið úr byssu á bíl Dags um liðna helgi. Bif­reiðin var að öllum líkindum mann­laus þegar at­vikið varð og senni­lega við heimili borgar­stjóra. Eðli málsins sam­kvæmt lítur lög­regla málið mjög al­var­legum augum.

Vig­dís hefur um langa hríð verið einn harðasti and­stæðingur Dags B. Eggerts­sonar og hafa sumir látið að því liggja að Vig­dís beri ein­hverja á­byrgð á at­viki liðinnar helgar. Líf Magneu­dóttir, borgar­full­trúi VG, ýjaði til dæmis að því á Twitter í gær og vísaði til mynd­bands þar sem heimili Dags sést. Vig­dís les inn á mynd­bandið sem hún segir að hafi verið unnið fyrir sam­tökin Björgum Lauga­veginum.

Vig­dís hefur um langa hríð verið einn harðasti gagn­rýnandi Dags. Í fyrra­sumar lét hún alls­konar ó­fögur orð fjalla um borgar­stjóra í pistli sem vakti nokkra at­hygli.

En Vig­dís vill ekki sjá það að stjórn­mála­menn verði fyrir of­beldi eða ógnunum af ein­hverju tagi.

„Við sem sam­fé­lag getum aldrei liðið of­beldi og skemmdar­verk. Ég hef marg­oft tekið upp öryggis­mál borgar­full­trúa á for­sætis­nefndar­fundum og hefur aldrei neitt verið gert með það. Að minni beiðni eru öryggis­málin loks á dag­skrá for­sætis­nefndar kl. 10:30 í dag. Snúum bökum saman hvar í flokki sem við stöndum og komum í veg fyrir of­beldi,“ segir hún á Facebook-síðu sinni.