Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að það sé komið yfir þráhyggjustig hjá borgarstjóra og meirihlutanum í borgarstjórn hversu mikið hefur verið þrengt að bílaumferð í Reykjavík.
Vigdís lagði fram bókun á fundi skipulags- og samgönguráðs í dag. Segir Vigdís að þar hafi verið kynnt að loka eigi Kvosinni alfarið fyrir bílaumferð.
„Enn er þrengt að bílaumferð í Reykjavík. Hér er kynnt að loka eigi allri Kvosinni. Þetta er löngu komið yfir eitthvert þráhyggjustig hjá borgarstjóra og meirihlutanum. Þetta er hrein ögrun gagnvart Reykvíkingum og landsmönnum öllum,“ sagði Vigdís í bókun sinni.
Sagði Vigdís það bæði sorglegt og óhugnanlegt hvernig búið sé að skemma miðbæinn undanfarinn rúman áratug undir stjórn vinstri manna í borgarstjórn.
„Einnig er það ábyrgðarleysi að verið er að loka aðgengi að opinberum stofnunum ríkisins. Borgin ber skyldur gagnvart ríkinu. Sú skylda er hundsuð í þessu máli – enda mega að sjálfsögðu engir bílar vera fyrir góða fólkinu þegar verið er að flýta sér úr ráðhúsinu yfir á Vinnustofu Kjarvals.“