Vig­dís hjólar í Ólaf og RÚV: „Móður og frekar æstur“

Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, er ekki sátt við Ólaf Þ. Harðar­son, prófessor í stjórn­mála­fræði, í kosninga­sjón­varpi RÚV í kvöld.

„Á RÚV að leika lausum hala í allt kvöld með há­skóla­prófessor í broddi fylkingar að tala niður til Mið­flokksins,“ segir Vig­dís á Face­book-síðu sinni.

Ólafur ræddi meðal annars stuðninginn við Guð­mund Frank­lín Jóns­son og benti á að hlut­falls­lega væru flestir af hans stuðnings­mönnum kjós­endur Mið­flokksins.

Vig­dís segist hafa vonast eftir skemmti­legu kosninga­sjón­varpi en sú von sé nú farin. „Ólafur er meira að segja móður að flytja þessar fals­fréttir og er frekar æstur. Svona er hægt að breyta góðum sam­fé­lögum - til hins verra“

Færsla Vig­dísar hefur vakið nokkur við­brögð og taka margir undir með henni. Stefán Einar Stefáns­son, við­skipta­f­rétta­stjóri á Morgun­blaðinu, leggur orð í belg og segir: „Eitt hatar hann meira en Mið­flokkinn og það er Davíð Odds­son.“

Á RÚV að leika lausum hala í allt kvöld með háskólaprófessor í broddi fylkingar að tala niður til Miðflokksins Ég...

Posted by Vigdís Hauksdóttir on Laugardagur, 27. júní 2020