Vigdís Hauks hættir í pólitík: „Kjörtímabilið verið mjög krefjandi pólitískt séð“

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum en hún hefur verið í kjörin full­trúi í tæp 12 ár fyrir Mið­flokkinn bæði á þingi og í borginni.

Vig­dís segir að síðasta kjörtímabil hafi verið mjög krefjandi og metur það svo að gagnrýni hennar á rekstur borgarinnar muni ekki fá hljómgrunn að kosningum loknum.

„Í fyrsta lagi hefur kjörtímabilið verið mjög krefjandi pólitískt séð. Ég hef flett ofan af fjármálasukki í fjölda málaflokka í borgarrekstrinum án nokkurra afleiðinga fyrir borgarstjóra og meirihlutann. Í öðru lagi er fjárhagsstaða Reykjavíkur komin langt yfir hættumörk. Skuldirnar eru stjarnfræðilegar og áætlað er að þær verði 240 milljarðar í árslok 2026. Þar af er búið að skuldsetja næsta kjörtímabil upp á 92 milljarða samkvæmt lántökuáætlun. Það er sérlega ósvífið,“ skrifar Vigdís.

„Í þriðja lagi þá hefur viðhald skólahúsnæðis verið ófullnægjandi og grunnskólabörn eru á hrakhólum út um alla borg. Ekki hefur verið staðið við uppbyggingu leikskóla og borginni er haldið í heimatilbúnum lóðaskorti sem leiðir til fasteignaverðs í hæstu hæðum. Í fjórða lagi bendir ekkert annað til þess en að borgarstjóri ætli sér að halda völdum með ein-hverjum útfærslum að nýjum viðreistum meirihluta eins og í kosningunum 2014 og 2018,“ bætir hún við.

Hún þakkaði síðan kjósendum Miðflokksins fyrir að veita sér brautargengi í Alþingiskosningum 2009 og 2013 og borgarstjórnarkosningum 2018.

„Að sitja í tæp tólf ár sem kjörinn fulltrúi í umboði ykkar hefur verið afar lærdómsríkt og ekki síður gefandi. Ég hef alltaf sagt að vika er langur tími í pólitík og hef nú tekið ákvörðun um að sækjast ekki eftir að leiða Miðflokkinn í borgarstjórnarkosningum í vor.“