Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, kemur að fjöllum vegna ummæla varaborgarfulltrúans Baldurs Borgþórssonar sem sagði sig úr flokknum í gær.
Starfshættir Vigdísar eru helsta ástæða þess að Baldur ákvað að segja skilið við flokkinn og lýsti hann því á Bylgjunni í morgun að hún hefði farið gegn þeim gildum sem flokkurinn setti sér. Meðal þessara gilda hafi verið að fulltrúar flokksins höguðu störfum sínum og starfsháttum þannig að þeir væru í hvívetna málefnalegir og sýndu góða framkomu og góðan þokka. Vildi Baldur meina að Vigdís hefði þverbrotið þessi gildi.
Í samtali við mbl.is í dag segist Vigdís þó ekkert kannast við það sem Baldur heldur fram.
„Ég kannast ekki við neitt af því sem að maðurinn er að tala um. Hann vísar í eitthvað sem kom upp árið 2018, ég minni á að borgarstjórnarkosningarnar voru árið 2018. Eins og ég segi; ég kannast ekki við þetta og þar að auki hefur hann aldrei rætt neitt af þessu tagi við mig,“ segir hún við fréttavef Morgunblaðsins.