„Þetta er svo rosalegt í alla staði. Hversu ósammála sem fólk er Degi þá er svona pólitík algerlega ömurleg og lýsir algeru rökþroti,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, á Facebook-síðu sinni.
Þar deilir hann frétt Fréttablaðsins frá því í gær þar sem greint var frá herferð aðgerðarhópsins Björgum miðbænum, YouTube-notandans Jóns Jónssonar og Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins. Um er að ræða auglýsingaherferð þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er sakaður um valdníðslu, hroka, skuldasöfnun og bruðl.
Vigdís segir við Fréttablaðið að verkefnið sé ekki á vegum huldumanna heldur aðgerðarhópsins Björgum miðbænum. Meðal þeirra sem hafa verið áberandi í tengslum við hópinn er Bolli Kristinsson kaupmaður. Í auglýsingunni les Vigdís texta yfir myndskeiði af Óðinstorgi þar sem fullyrt er að nýlegar framkvæmdir við torgið hafi verið gæluverkefni Dags.
Björn Leví gefur ekki mikið fyrir þessa pólitík sem þarna er stunduð.
„Í staðinn fyrir að skilja það þá er farið í útúrsnúninga og kostaðar auglýsingaherferðir. Ég er ekki 100% sammála pólitík Samfylkingarinnar eða því hvernig Dagur stjórnar í borginni. Píratar hafa þurft að berjast fyrir því að gera mörg mál betri í meirihluta á undanförnum árum, og hafa náð ótrúlegum árangri þrátt fyrir að vera fá. Þeim árangri má borgarstjóri auðvitað einnig deila vegna þess að hann sinnir samvinnu,“ segir Björn Leví.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins í gær sagðist Degi vera brugðið vegna auglýsingarinnar.
„Mér sýnist vera brotið í blað í þessari auglýsingu sem Bolli Kristinsson, fyrrverandi kaupmaður, ber ábyrgð á. Í fyrsta lagi að auðmaður fjármagni rógsherferð í krafti auðs til að sannfæra almenning um hluti sem eru rangir og hafa verið hraktir í öllum fréttum. Og hins vegar að Bolli skuli hafa geð í sér til að gera myndir af heimili mínu að aðalatriði á meðan dylgjur og rakalausar ásakanir eru lesnar yfir. Þetta er mínu mati ömurlegt og nýtt á Íslandi,“ sagði Dagur.