Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, sendir Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, ískaldar kveðjur á Twitter-síðu sinni.
Þar deilir Sigurborg skjáskoti af frétt Vísis þar sem segir í fyrirsögn að „rokkstjarnan“ Vigdís hafi verið ráðin kosningastjóri Miðflokksins. Greint var frá ráðningunni í morgun en í tilkynningu Miðflokksins kom orðrétt fram að Vigdís væri „sannkölluð rokkstjarna íslenskra stjórnmála.“
Sigurborg og Vigdís hafa lengi eldað grátt silfur saman og voru þær ekki oft sammála þegar þær áttu sæti í borgarstjórn; Sigurborg í meirihluta en Vigdís í minnihluta. Hún getur að minnsta kosti ekki með nokkru móti tekið undir það að Vigdís sé rokkstjarna.
„Kjörinn fulltrúi sem níðist á starfsfólki, fer með lygar í annarri hverri setningu og skeytir engu um hagsmuni almennings er ekki rokkstjarna.“
Kjörinn fulltrúi sem níðist á starfsfólki, fer með lygar í annarri hverri setningu og skeytir engu um hagsmuni almennings er ekki rokkstjarna. pic.twitter.com/w4eDYxYrff
— Sigurborg Ósk Haraldsdóttir (@SigurborgOsk) August 24, 2021