Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segist hafa fengið holskeflu símhringinga að undanförnu. Svo virðist vera sem símhringingarnar komi frá Kýpur, Bandaríkjunum og Svíþjóð án þess þó að Vigdís eigi von á símtölum frá þessum löndum.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segist hún ekki svara símhringingunum og spyr: „Eru fleiri að lenda í þessu?“
Margir virðast kannast við að fá símhringingar frá þessum stöðum og segir til dæmis í einni athugasemd: „Já og þeir voru með nafnið mitt!“. Viðkomandi segist hafa orðið að svara starfs síns vegna. Fleiri taka undir þetta og nefna einkum Kýpur og Svíþjóð í þessu samhengi.
Einn, sem segist hafa fengið símtal frá bæði Svíþjóð og Kýpur, segist hafa svarað og þá kom á daginn að viðkomandi var að reyna að selja einhvers konar þjónustu í gegnum netið.
Þá slær einn af vinum Vigdísar á létta strengi og spyr hvort Dagur B. Eggertsson sé ekki bara að reyna að ná í hana.
Það þarf vart að taka það fram að fólk er hvatt til að svara ekki slíkum símhringingum en lögregla hefur ítrekað varað við svikasímtölum frá útlöndum að undanförnu.