Vig­dís brjáluð út í Strætó: „Nekt er mjög við­kvæm hjá mörgum“

Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, er ó­hress með aug­lýsingu Ljós­mæðra­fé­lags Ís­lands sem meðal annars má sjá á einum af strætis­vögnum borgarinnar.

Um­ræddur strætis­vagn er skreyttur teikningum sem sýna konur í fæðingu og við hlið þeirra má sjá orðin: „Við tökum vel á móti þér!“

Vagninn hefur nú ekið um götur borgarinnar í um það bil viku og vakið eftir­tekt. Al­þjóða­dagur ljós­mæðra var þann 5. maí síðast­liðinn og þann dag opnaði ein­mitt sýning með sama nafni, Við tökum vel á móti þér, í Þjóðar­bók­hlöðunni.

Vig­dís er hins vegar allt annað en sátt við teikningarnar og spyr hvort þeir hjá strætó sé „að missa vitið“. Svo virðist sem Vig­dísi þyki myndirnar fara yfir strikið.

„Hverju á að ná fram með svona aug­lýsingum? Nekt er mjög við­kvæm hjá mörgum hópum í sam­fé­laginu - og þetta blasir við börnum sem nota Strætó sem eiga að vera fram­tíðar kúnnar borgar­línu. Er þetta keypt aug­lýsing eða að frum­kvæði Strætó?,“ spyr Vig­dís á Facebook-síðu sinni.