Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er allt annað en sátt við þann meirihluta sem er við völd í Reykjavík. Vigdís skellti sér í göngutúr um miðborgina og tók nokkrar myndir sem hún birti á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu.
Í færslunni segir Vigdís:
„Miðbærinn er orðinn mjög skítugur og ógeðslegur . Þetta er víst það sem meirihlutinn vill …!!! Hvaða stefna er þetta?“
Vigdís segist hafa farið í það sem hún kallar „rafmagnskassagöngutúr“ niður Laugaveg, frá Hlemmi að Lækjargötu og Hverfisgötu að Hlemmi. „Fyrir ykkur sem aldrei farið í miðbæinn – þá er ástandið svona,“ segir Vigdís í færslunni.
Hér má sjá hluta þeirra mynda sem Vigdís birtir:
Miðbærinn er orðinn mjög skítugur og ógeðslegur Þetta er víst það sem meirihlutinn vill …!!! Hvaða stefna er...
Posted by Vigdís Hauksdóttir on Þriðjudagur, 13. október 2020