Vigdís allt annað en sátt: „Hverslags vinnubrögð eru þetta?“

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, gagnrýnir harðlega þá ákvörðun meirihlutans í borginni að lækka hámarkshraðann á götum í eigu borgarinnar.

„Meirihlutinn tilkynnti einhliða um lækkun ökuhraða á götum borgarinnar án þess að hafa samráðs við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu - lögreglan fær að vita um þessa ákvörðun í fréttum!!! Hverslags vinnubrögð eru þetta?,“ spyr Vigdís á Facebook-síðu sinni.

Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði við Morgunblaðið í gær að ef breytingarnar verði að veruleika þurfi að tryggja að lögreglan geti sinnt eftirlitinu. Til þess þurfi bæði mannafla og tækjabúnað. „Ef ekki er hægt að framfylgja svona breytingum þá hafa þær lítinn tilgang,“ sagði hann. Fleiri hafa gagnrýnt fyrirhugaðar breytingar, þar á meðal Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.

Þá var greint frá því í Morgunblaðinu í dag að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki fengið erindi inn á borð til sín frá borginni um lækkun hámarkshraða.

Vigdís segir að nú bætist enn í samfélagslegan kostnað af þessari ákvörðun því lögreglan geti ekki sinnt eftirlitinu nema að fá stóraukið fjármagn frá ríkinu. „Tafakostnaður fyrir fólk og fyrirtæki er enn óreiknaður - hann hleypur á milljörðum á ári.“