Við­vörunar­bjöllur Víðis farnar af stað

Við­vörunar­bjöllur Víðis Reynis­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns al­manna­varna, eru farnar af stað og kveikt á þeim vegna fjölgunar kórónu­veiru­smita. Þetta segir Víðir í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnarsem birtist í dag.

„Við höfum alltaf á­hyggjur þegar tölurnar stökkva upp og það kveikir alltaf á við­vörunar­bjöllum,“ segir Víðir í sam­tali við frétta­stofuna. Tíu smit greindust í dag en níu voru í sótt­kví og segir hann það í það minnsta já­kvætt.

Víðir segist hafa mestar á­hyggjur af því að sá fjöldi landa­mæra­smita sem greinist nú, fari brátt að greinast innan­lands líka.

„Það er það sem við höfum mestar á­hyggjur af núna og sótt­varna­læknir hefur sent heil­brigðis­ráð­herra minnis­blað þar sem hann reifar hug­myndir sínar um hvernig er hægt að herða tökin á landa­mærunum,“ segir Víðir.

„Við sjáum neyðar­á­standið í löndunum í kring um okkur. Í Bret­landi, Dan­mörku og víða í Evrópu er nánast al­gjört neyðar­á­stand í gangi. Við viljum auð­vitað verja okkur eins og hægt er og vonandi fá þessar til­lögur sótt­varna­læknis um­ræðu,“ segir Víðir. Hann segir það sjást hvað sam­staðan skipti miklu máli á Ís­landi.

„Við sjáum bara hversu miklu sam­staðan hjá ís­lensku þjóðinni hefur skilað í bar­áttunni en á sama tíma sjáum við aðrar þjóðir þar sem það hefur ekki náðst. Við sjáum það hjá fólki sem kemur frá þeim löndum að það kannski telur að það geti hegðað sér á Ís­landi eins og það hegðaði sér heima hjá sér. Við erum að reyna að út­skýra fyrir fólki að við erum komin með aðra menningu í þessu hér,“ segir Víðir.