Við­skipta­vinir geta sótt um endur­fjár­mögnun á lánum sínum í gegnum vefinn

Linda Lyng­mo verk­efna­stjóri hjá Ís­lands­banka verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fast­eignir og Heimili í kvöld:

Það má með sanni segja að í dag fleygi tækninni fram á hverjum degi sem er kær­komið á þessum for­dæma­lausu og flóknu tímum sem nú ganga yfir. Ís­lands­banki hefur lagt sitt af mörkum til að þjónusta við­skipta­vini sína á sem skil­virkasta og hag­kvæmasta hátt sem völ er á að hverju sinni og eru í stöðugri þróun í því að gera betur.

Tölu­verð aukning hefur verið á því að fólk endur­fjár­magni nú­verandi hús­næðis­lán sín með það í huga að lækka vexti og greiðslu­byrði og fyrst og fremst til að vera með hag­stæðari lán en ella. Nú er Ís­lands­banki kominn með nýja þjónustu­leið, sjálf­virka leið fyrir endur­fjár­mögnunar­ferli gegnum vefinn sem er mikil kostur fyrir við­skipta­vini.

Sjöfn Þórðar hittir Lindu Lyng­mo verk­efna­stjóra í höfuð­stöðvum bankans og fær frekari inn­sýn í þessa nýju þjónustu­leið.

„Með því að nýta sér þessa nýju þjónustu­leið, spara við­skipta­vinir tíma og geta núna sótt um, stillt upp nýjum lánum og klárað ferlið í sófanum heima hjá sér sem minnkar kol­efnis­spor í leiðinni,“ segir Linda og segir jafn­framt að Ís­lands­banki kapp­kosti að vinna að lausnum fyrir hvern og einn enda séu að­stæður fjöl­skyldna marg­vís­legar og ó­líkar.

Linda mun jafn­framt segja okkur frá helstu að­gerðum Ís­lands­banka til að koma til móts við við­skipta­vini sína á þessum for­dæma­lausu tímu til létta þeim róðurinn við rekstur heimilisins og takast á við þær á­skoranir sem við stöndum fyrir næstu vikur og mánuði. Meira um þessi mál í þættinum í kvöld.

Þátturinn Fast­eignir & Heimili verður á dag­skrá í kvöld klukkan 20.30 og er að jafnan ferskur, fjöl­breyttur og með per­sónu­legum blæ.