Viðskiptablaðið skýtur á Lilju og líkir henni við karakter úr Dumb & Dumber

Huginn og Muninn, nafnlaus skoðanadálkur Viðskiptablaðsins, skýtur nokkuð föstum skotum að Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins sem kom út í dag.

Þar er Lilju líkt við karakter úr einni vinsælustu gamanmynd síðustu áratuga, Dumb & Dumber.

„Í meistarastykkinu Dumb & Dumber verða vinirnir Harry og Lloyd fyrir ýmsum skakkaföllum. Á einum tímapunkti fær Lloyd nóg af Harry en á ótrúlegan hátt nær hann að rétta úr kútnum og koma þeim til Aspen,“ segir í dálknum og því bætt við að Hrafnarnir í Viðskiptablaðinu fái ekki betur séð en að Lilja sé að ná sambærilegri björgun.

„Á kjörtímabilinu hefur hún brotið jafnréttislög, haldið RÚV á auglýsingamarkaði, komið á arfaslöku styrkjakerfi til fjölmiðla, ekki tekið skóflustungu að nýjum þjóðarleikvöngum í handbolta og knattspyrnu og leyft íslensku íþróttalífi að deyja drottni sínum í heimsfaraldri. Því munu Lloydar landsins sennilega gleyma á næstunni enda teiknimyndir með íslensku tali nú komnar á Disney+ eftir bréfaskrif ráðherrans.“