Viðskiptablaðið skýtur á Gísla Martein eftir að hann eyddi færslunni um laun þingmanna

Huginn og muninn, skoðanadálkur Viðskiptablaðsins, skýtur ákveðnum skotum á Gísla Martein Baldursson, sjónvarspmann og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Eins og Hringbraut greindi frá í gær kallaði Gísli Marteinn eftir því að laun þingmanna yrðu lækkuð – þeir gætu að minnsta kosti vel verið á lægri launum en þeir eru. Fréttin vakti talsverða athygli en þess er getið í skoðanadálki Viðskiptablaðsins að Gísli Marteinn hafi eytt færslunni nokkru eftir að hafa birt hana.

„Kannski moðvolg skoðun en mér finnst þingmenn á óþarflega háum launum. Klisjan um að við fáum svo frábært fólk með því að hækka launin er ekkert endilega rétt. Besta fólkið á þingi væri þar líka þótt launin væru „bara“ milljón á mánuði,“ sagði Gísli Marteinn í færslu sinni.

Viðskiptablaðið segir að fá mál séu Gísla Marteini óviðkomandi en hann virðist þó hafa séð að sér og eytt færslunni eftir að hafa deilt henni.

„Hrafnana grunar að glöggur lesandi tekjublaðs Frjálsrar verslunar hafi bent Gísla Marteini á að tekjur hans hafi numið hátt í 1,2 milljónum króna á mánuði á síðasta ári, sem er svipað há fjárhæð og þingfararkaup alþingismanna. Ef Gísla Marteini er svo umhugað um að spara fjármuni skattgreiðenda gæti hann látið kné fylgja kviði og krafist lækkunar á eigin launum.“