„Það bendir allt til þess að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri verði valinn starfsmaður mánaðarins í Seðlabankanum,“ segir í pistli Týs á leiðarasíðu Viðskiptablaðsins sem kom út í dag.
Í pistlinum fær Ásgeir sinn skerf af gagnrýni en hann steig fram í viðtali við Stundina á dögunum þar sem hann sagði meðal annars að Íslandi væri að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum sem ekkert grín væri að lenda í. Gagnrýnir Ásgeir meðal annars framgöngu Samherja. Viðtalið vakti mikla athygli og hlaut Ásgeir mikið lof fyrir að þora að stíga fram og lýsa skoðunum sínum umbúðalaust. Viðskiptablaðið gefur hins vegar lítið fyrir frammistöðu Ásgeirs í viðtalinu.
„Í viðtali við Stundina í síðustu viku tók hann til varna fyrir þá starfsmenn Seðlabankans sem gengu hvað harðast fram í gjaldeyriseftirliti bankans eftir hrun. Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson, Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Sigríður Logadóttir og Rannveig Júníusdóttir – sem nýlega fékk stöðuhækkun innan bankans – hljóta öll að vera himinlifandi. Stjórnmálamenn af vinstri kantinum og ritstjórar vefmiðla þeim hliðhollir ráða sér vart af gleði yfir ummælum Ásgeirs.“
Í pistlinum segir að allir þeir sem hafa lesið bókina Gjaldeyriseftirlitið – vald án eftirlits? eftir Björn Jón Bragason viti hvernig starfsmenn bankans fóru með vald sitt. Þeir hafi ráðist í húsleitir og valdið fólki og fyrirtækjum ómetanlegum skaða.
„Það sem fram kemur í bókinni hefur ekki verið hrakið. Týr veit ekki hversu mörg málin eru sem ekki var fjallað um þar eða hversu margir létu undan valdníðslunni án þess að hafa burði til verja sig eða sækja rétt sinn síðar. Eftir að bókin kom út hefur komið í ljós að Ingibjörg var í samkrulli við fréttamann RÚV um húsleit hjá útgerðarfélaginu Samherja áður en húsleitin sjálf fór fram. Týr veit ekki hvort önnur dæmi séu um slík vinnubrögð og sjálfsagt munum við aldrei komast að því.“
Þá segir í pistli Týs að það sé fyrir löngu komið í ljós að ekki stóð steinn yfir steini í málatilbúnaði Seðlabankans gegn Samherja.
„Ásgeir hefur eflaust gert sér grein fyrir því að Samherji á ekki marga vini í þjóðfélagsumræðunni og því látið ummælin falla. Hann hefur þó ekki svarað því af hverju Már, Arnór, Ingibjörg, Sigríður og Rannveig ættu að fá að beita sér með þessum hætti án þess að þurfa að bera á því nokkra ábyrgð.“