Íslendingar eiga marga öfluga og skemmtilega sjónvarpsmenn en sumir þykja einfaldlega viðkunnanlegri en aðrir.
Í skýrslu fjölmiðlanefndar um RÚV sem birt var í desember síðastliðnum var vísað í niðurstöður áhugaverðrar könnunar Gallup sem gerð var í maí 2019 um viðhorf almennings til RÚV.
Ein spurningin sneri að sjónvarpsfólki, eða öllu heldur hvaða sjónvarpsfólk svarendum þætti viðkunnanlegt á skjánum. Um var að ræða opna spurningu og voru engir svarmöguleikar gefnir fyrir fram. Þess í stað var fólk beðið um að nefna 1-3 sjónvarpsmenn (konur og/eða karla) sem það kynni vel við á skjánum.
Það er skemmst frá því að segja nafn Boga Ágústssonar var nefnt langoftast, eða af 56,9% svarenda en nafn Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur var nefnt næstoftast, af 24,6% svarenda. Þá var nafn Loga Bergmanns Eiðssonar nefnt af 16,1% svarenda og nafn Eddu Andrésdóttur af 12,4% svarenda.
Það var Björgvin Guðmundsson, almannatengill hjá KOM, sem vakti athygli á þessu á Twitter á dögunum. Gamli skólinn, ef svo má segja, nýtur því talsvert meiri hylli en unga kynslóðin í sjónvarpinu. Á eftir þeim fjórum sem nefndir voru hér að framan koma þó kunnugleg nöfn eins og sjá má á listanum hér að neðan.