Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, skellti sér á Twitter í kvöld til að útskýra breytingar á sóttkví.
Verulegar breytingar verða á sóttkví og taka reglurnar gildi á miðnætti. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tilkynnti þetta að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Þau sem eru útsett fyrir utan heimili fara í smitgát en börn og unglingar verða undanþegin.
„Þráður um algengar spurningar vegna breytinga á sóttkví: Barnið mitt er núna í sóttkví – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun? JÁ nema ef barnið er í sóttkví vegna smits á heimili,“ skrifar Víðir á twitter.
„Barnið mitt er núna í einangrun – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun? Neirnið mitt er núna í einangrun – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun? Nei,“ bæitr hann við.
„Barnið mitt er núna í smitgát – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun? JÁ,“ skrifar Víðir“
„Barnið mitt á að mæta í PCR á morgun – þarf það að mæta? JÁ ef barnið er í sóttkví vegna smits á heimili, ef ekki er það samt æskilegt,“ segir hann að lokum.
Þráður um algengar spurningar vegna breytinga á sóttkví:
— Víðir Reynisson (@VidirReynisson) January 25, 2022
Barnið mitt er núna í sóttkví – hvað gildir nú? Má barnið mæta í skóla- og frístundastarf á morgun?
JÁ nema ef barnið er í sóttkví vegna smits á heimili.